16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2936 í B-deild Alþingistíðinda. (1858)

88. mál, tilbúinn áburður

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Vinur minn og sessunautur, hv. þm. V.-Húnv., talaði um, að n. hefði dregið annað augað í pung, eða lokað öðru auganu, þegar hún fjallaði um þetta mál, en því leyfi jeg mjer að mótmæla. Hún hafði bæði augun galopin, en jeg efast um, að hv. þm. V.-Húnv. hafi verið eins vakandi, er hann las yfir frv. Jeg held helst, að hann hafi haft bæði augun aftur, því hann veit ekki, hvað í frv. stendur. Hann fetti fingur út í það, að menn fengju ekki styrk nema til sjóflutninga, en það er alger misskilningur. Tilætlunin er sú, að menn fái styrk til að flytja að sjer vöruna, t. d. fengi bóndinn á Reykjum styrk til þess í hlutfalli við aðra. Styrkurinn kemur öllum til góða, en sá er munurinn, að menn, sem búa í nánd við Reykjavík, eiga hægari aðstöðu en aðrir og fá því nú minni styrk. Annars skal jeg játa það, að fullkomið rjettlæti verður aldrei fundið með slíkum styrkveitingum, en við álítum, að komist yrði mun nær takmarkinu með þessu móti heldur en eins og nú er. Munarins gætir því aðeins, að um verulegar vegalengdir sje að ræða.

Finst mjer svo ekki ástæða til að fara fleirum orðum um málið, en mjer virðist það undarlegt, ef menn geta ekki sætt sig við þetta frv., þótt það sje ekki alfullkomið, því að öllum mun þó ljóst, að það miðar til stórra bóta.