18.05.1929
Neðri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2941 í B-deild Alþingistíðinda. (1873)
88. mál, tilbúinn áburður
Hákon Kristófersson:
Ef á að skilja frv. þannig, að aðeins sje átt við strandferðaskip ríkisins, Esju, tel jeg betur farið, að það verði felt. (JS: Þetta er misskilningur). Er átt við öll skip, sem styrkt eru af fje ríkissjóðs? (JS: Já). Ef svo er, hefi jeg misskilið frv., og tek þá orð mín aftur. Mín andmæli bygðust einungis á því, að átt væri við Esju.