07.05.1929
Neðri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2946 í B-deild Alþingistíðinda. (1886)
128. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Gunnar Sigurðsson:
Jeg vil aðeins taka það fram, að n. leggur eindregið til, að frv. þetta verði samþ. Reykjavíkurbær leggur mikla áherslu á að fá það í gegn; þess vegna vil jeg leyfa mjer að leggja til fyrir hönd n., að frv. verði samþ., og jafnframt beina því til hæstv. forseta, að hann taki það sem fyrst á dagskrá aftur.