01.05.1929
Neðri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2977 í B-deild Alþingistíðinda. (1926)
4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Jeg var ekki viðstaddur, þegar hv. frsm. minni hl. hóf umr. um þetta mál. Sakir þess veit jeg ekki með vissu um alt, sem fram kann að hafa komið frá hans hendi. Þó tók jeg eftir því, að hann lagði mikla áherslu á það, að frádráttur frá afurðaverði eftir 4. gr. væri of mikill, og taldi hann 5% fyrningargjald og 5% varasjóðsgjald óhæfilega mikinn frádrátt. Jeg verð nú að segja, að á meðan engin reynsla er fengin um þessa hluti, er ekki gott að gera nákvæmar áætlanir um þetta. Út af fyrir sig virðist fyrningargjaldið eigi hátt, og enginn getur sjeð fyrir áföll varasjóðs. Það virðist því rjett að hafa vaðið fyrir neðan sig í þessum efnum sem öðrum og áætla ekki gjöld verksmiðjunnar of lág. 10% eftir 2. og 3. lið gr. virðist t. d. ekki of hátt áætlað til greiðslu höfuðstóls, fyrningar og vaxta. Sama er að segja um gjaldið í varasjóð, sem áætlað er 5%. En eigi að síður virtist mjer helst, að komið gæti til mála að færa þann lið niður, ef um niðurfærslu væri að ræða. Hina liðina tel jeg ekki lært að færa niður, meðan alla reynslu vantar um rekstur þessa fyrirtækis.
Háttv. frsm. minni hl. fann að ýmsum fyrirkomulagsatriðum að því er snertir rekstur verksmiðjunnar, og þá sjerstaklega að ákvæðum 5.–8. gr. Það er að sjálfsögðu álitamál, hvernig þessu eigi að skipa, og er því tæplega hægt að búast við, að nú þegar verði hægt að finna þann grundvöll, sem aldrei þurfi að breyta. Jeg fyrir mitt leyti verð því að álíta, að þar sem svo virðist, að gert sje ráð fyrir í frv. þessu öllum þeim atvikum, sem líkur benda til, að fyrir geti komið við rekstur verksmiðjunnar, þá sje rjett að samþ. frv. eins og það liggur fyrir, enda liggja ekki fyrir neinar brtt. við það. Meiri hl. sjútvn. leggur því til, að frv. verði samþ. óbreytt, en gerir hinsvegar ráð fyrir, að með tíð og tíma þurfi að gera einhverjar breyt. á því.
Vil jeg svo ekki tefja umr. frekar.