01.05.1929
Neðri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2978 í B-deild Alþingistíðinda. (1927)
4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg hefi enga ástæðu til þess að halda langa ræðu um mál þetta nú, a. m. k. ekki vegna þess, hvernig hv. 2. þm. G.-K. tók í það, þegar það var hjer síðast á dagskrá. Út af ræðu þeirri, sem hann flutti þá, vil jeg fyrst segja þetta: öðruvísi mjer áður brá. — Þegar mál þetta um stofnun síldarbræðslustöðvar var hjer til umr. í fyrra, þá talaði þessi hv. þm. um það, hvílíkt geysilegt áhættufyrirtæki slíkt fyrirtæki sem þetta væri. En nú, þegar frv. þetta kemur fram samkv. beinu loforði frá í fyrra, þá söðlar hv. þm. um og talar um það, hvílíkt geysilegt gróðafyrirtæki hjer sje um að ræða, þar sem ríkið komi til með að eiga ekki aðeins verksmiðju þessa eftir 20 ár, heldur að auki 5 milj. kr. í sjóði sem beinan ágóða af rekstri verksmiðjunnar. Svo mikill á gróði þessa fyrirtækis að verða.
Jeg verð nú að segja, að mjer finnast þessir útreikningar hv. þm. vera nokkuð mikið út í loftið. En jeg trúi ekki öðru en svo megi ganga frá þessu máli, að hjer verði hvorki um stórgróða- eða stóráhættufyrirtæki að ræða, og að því vil jeg vinna, því að jeg er alveg á sömu skoðun og Magnús sál. Kristjánsson var, að hjer eigi ekki að vera um neitt gróðafyrirtæki að ræða og ekki heldur áhættufyrirtæki.
Annars virtist mjer, að nú gætti meiri velvildar í garð þessa fyrirtækis hjá þessum hv. þm. en í fyrra. Það voru meira fyrirkomulagsatriði, sem hann talaði um nú, en bein andstaða gegn málinu.
Þar sem hv. þm. lýsti ánægju sinni yfir því, að stj. hefði farið að vilja íhaldsmanna í þessu máli, má hann túlka eins og hann vill. Við fórum hjer fram á framkvæmd á samvinnugrundvelli, og jeg býst við, að flestum sje það ljóst, að við munum ekki hafa þurft að fara til íhaldsmanna til þess að fá skilning um það, að það var sá grundvöllur, sem hyggilegast var að byggja þetta mál á. Jeg held því, að sje ástæða fyrir einhverja að gleðjast í sambandi við þetta mál, þá sjeum það við framsóknarmenn, sem megum gleðjast yfir því, að íhaldsmenn hafa þó a. m. k. í þessu máli snúið frá villu síns vegar.
Jeg skal þá snúa mjer að einstökum atriðum málsins.
Aths. hv. þm. beindust fyrst og fremst að 4. gr. frv. Við fyrstu tvo liði hennar hafði hann lítið að athuga. Voru því aths. hans aðallega við 3. og 4. lið hennar. Hv. þm. hjelt því fram, að það væri alt of ríflega lagt í þessa liði, og þá sjerstaklega alt of mikið lagt í varasjóðinn. Eins og tekið var fram í fyrra, er ekki ætlast til, að hjer verði um að ræða áhættufyrirtæki fyrir ríkissjóð, og þegar engin reynsla er fengin fyrir rekstri slíkrar verksmiðju, þá er ekki hægt að gera ráð fyrir, að strax verði hægt að lenda á hinum rjettu tölum í þessum efnum. En mín skylda er nú sú, að sjá fyrir hag ríkissjóðsins; má því vel vera, að reynslan sýni, að jeg hafi haft hjer vaðið fullmikið fyrir neðan mig. Annars hygg jeg, að erfitt verði að fá hjer þær tölur, sem allir teldu vera hinar rjettu. Mjer virtist því ekkert óviðeigandi, að sett væri inn í frv. ákvæði um það, að þessi ,,skali“ skyldi lagaður, ef hann reyndist of hár. Aðrar aths. hv. þm. voru við 6., 6., 7. og 8. gr. frv. Og er þá fyrst að minnast á aths. hans við 5. gr. Í þeirri gr. eru ákvæði um að tryggja landsmönnum síldarmjöl til fóðurs. Hv. þm. taldi þetta þýðingarlítið atriði. En hinsvegar á þetta ekki að vera verksmiðjunni baggi. Þetta á að vera trygging fyrir bændur fyrir því, að þeir fái vöruna og fái hana óskemda. Hjer er um að ræða eina allra bestu fóðurbætistegundina, og ríður því á miklu, að hún fáist með sanngjörnu verði og óskemd, en því miður hefir á stundum verið nokkur misbrestur á því. Það hefir í sumum tilfellum reynst beinlínis hættulegt að skifta við verksmiðjurnar, ekki af því, að þær hafi vísvitandi selt skemda vöru, heldur er þessi vara svo viðkvæm, að það er mjög vandfarið með hana, ef hún á að geymast vel.
Nei, þetta er ekki smáatriði. Það er gert til þess að tryggja það, að bændur fái vöruna með sanngjörnu verði og óskemda, og það vænti jeg, að hv. þdm. telji hvorki lítilsvert nje ástæðulaust að taka með í reikninginn. Það er líka gott, þá því verður komið við, að atvinnuvegirnir geti stutt hver annan.
Hv. 2. þm. G.-K. spurði um, hvað meint væri með orðinu „kostnaðarverð“ í 5. gr. Mín hugsun var sú, að kostnaðarverð væri það verð, sem verður hið raunverulega verð þegar alt er gert upp við framleiðendurna. Hjer er því ekki um neina ívilnun að ræða. En vitanlega á ekki að leggjast á sá kostnaður og gjöld, sem koma á útfluttu vöruna.
Þá spurði hv. þm., hvort ætti að skylda bændur til að kaupa af verksmiðjunni. Um þetta er ekkert ákvæði í frv. og því ekki um neina skyldu að ræða aðra en þá, að láta vita fyrir ákveðinn tíma, hvort þeir vilja kaupa af þeim og hve mikið.
Þá er stjórnarfyrirkomulag verksmiðjunnar. 1 hv. Ed. vildu hv. Íhaldsmenn ekki láta Siglufjörð fá fulltrúa í stjórninni, en vildu, að einkasalan hefði einn fulltrúa og stj. annan. Jeg lít nú hinsvegar svo á, að Siglufjörður eigi heimtingu á að fá fulltrúa í stj., þar sem gert er ráð fyrir, að hann leggi verksmiðjunni til allmikið fje. Aftur á móti gæti komið til mála að fjölga stjórnendum upp í 5. Jeg sje ekkert á móti því, að það mætti verða með svona fyrirtæki, og þá gæti fulltrúi útgerðarmanna komist að.
Þá vjek hv. þm. að 8. gr. og sagði, að nú mundi vera búið að ganga sæmilega frá um kaup verksmiðjanna af erlendum skipum.
Jeg hygg, að hv. þm. viti, hvernig þetta fór. Jeg bannaði verksmiðjunum að kaupa. Þær keyptu eigi að síður. Jeg fór í mál við verksmiðjumar og það fór svo, að jeg tapaði málinu. Það er því nú sem stendur ekkert í veginum fyrir því, að þessar verksmiðjur kaupi svo sem þeim lítst síld af útlendum skipum.
Jeg sje ekki ástæðu til að taka fleira fram að svo stöddu um þetta mál, en skal taka það fram, að jeg er fús til að ræða málið við n. á milli umr.