01.05.1929
Neðri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2982 í B-deild Alþingistíðinda. (1928)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Magnús Jónsson:

* Hæstv. forsrh. þarf ekki að vera neitt undrandi yfir því, þótt öðruvísi sje tekið í þetta mál nú en frv. það, sem lá fyrir þinginu í fyrra. Í því voru engin ákvæði, sem bentu til, að skapa ætti ríkissjóði stórkostlega fjárhagslega áhættu; miklu frekar mátti gera ráð fyrir, að ríkið mundi hagnast heldur en hitt. Nú horfir þetta mál alt öðruvísi við, og er þá ekki nema eðlilegt, að fram komi andmæli gegn málinu. Nú er þessu hreyft á alt öðrum grundvelli, og skal jeg nú snúa mjer að nokkrum einstökum atriðum.

Hæstv. forsrh. hefir nú skýrt, hvað hann meinti með ,,kostnaðarverð“ í 5. gr., og eftir því er það ekki annað en eðlilegt markaðsverð, því að vitanlega er ekki greitt neitt útflutningsgjald af þessari vöru. Er þá ekki neitt um þetta að segja, eftir skýringu hæstv. ráðh., en orðið „kostnaðarverð“ í frv. er ákaflega óákveðið og liggur næst að skilja það eins og hv. 2. þm. G.-K. gerði. Þetta þurfa ekki að vera nein sjerstök fríðindi fyrir kaupendur og er líka á hinn bóginn athugavert fyrir útgerðarmenn, ef ekki er tekinn allur kostnaður til greina. Eftir skýringu hæstv. ráðh. er þetta ákvæði einkum sett til þess að tryggja, að bændur fái vöruna.

Þá kem jeg að stjórnarfyrirkomulagi verksmiðjunnar. Jeg hefi enn ekki heyrt eða sjeð nein rök færð fyrir því, að síldareinkasalan fái fulltrúa í stj. verksmiðjunnar. Mjer finst satt að segja, að verksmiðjan sje henni fullkomlega óviðkomandi. Hitt finst mjer mjög eðlilegt og sjálfsagt, að ríkisstj. og Siglufjarðarkaupstaður fái fulltrúa í stj. Þetta eru þeir aðilar, sem leggja fram stofnfjeð. Nei, miklu framar einkasölunni finst mjer, að þeir menn, sem mest eiga undir rekstri verksmiðjunnar og leggja henni til hráefni, ættu rjett á að fá mann í stj. Hæstv. atvmrh. hafði ekki beint á móti því, en taldi, að til þess þyrfti að fjölga stjórnarmeðlimum upp í 5. Mjer finst þetta óþarfi, enda finst mjer aðallega vera að ræða um þá 3 aðila, sem jeg nú hefi talið: ríkisstj., Siglufjörður og útgerðarmenn.

Þá kem jeg að ákvæðum 9. gr. um að verksmiðjan skuli vera undanþegin skatti. Jeg fyrir mitt leyti tel þetta algerlega rangt. Þetta fyrirtæki á auðvitað að greiða skatta og skyldur eins og hvert annað atvinnufyrirtæki. Jeg veit heldur ekki, hvernig þeir menn, sem vilja fjölga þessum fyrirtækjum, hugsa sjer að halda tekjum ríkisins óskertum með því að undanþiggja þau sköttum og skyldum. Jeg veit ekki, hvar slíkt lendir. Mjer finst líka, að þeir menn, sem hafa trú á þessum fyrirtækjum, ættu að treysta þeim til þess að bera þær byrðar, sem lagðar eru á einstaklingana. Þetta var sett inn í frv. í hv. Ed. Það var ekki í stjfrv., og vil jeg vekja athygli hv. n. á, að þetta er alls ekki til bóta, og væri mjög æskilegt, að hún vildi lagfæra það.

Þá er atriði, sem hv. 2. þm. G.-K. vjek að og talaði um af miklu meiri þekkingu en jeg nú mun gera. Það er í 4. gr., að mjer finst, hálfgerð hugsunarvilla. Það má skilja hana svo, að gert sje ráð fyrir, að verksmiðjan komist með tímanum í hendur þeirra manna, sem leggja henni til hráefnið. Sá skilningur byggist á því, að vextir af þeim peningum, sem standa í fyrirtækinu, sjeu taldir með rekstrarkostnaði.

Í fyrsta lið 4. gr. frv. er allur kostnaður tekinn með, stjórnarkostnaður og „annar venjulegur rekstrarkostnaður“, en ef byrjað er aftan á og litið á síðasta liðinn, þá kemur þar 5% gjald í varasjóð, en þar stendur ekkert um af hverju. (SvÓ: Af andvirði vörunnar). Jeg held, að það standi hvergi í frv. (Forsrh.: Það má auðvitað skýra þetta). Jeg held, að varasjóðsgjaldið ætti að reikna af ágóða. (Forsrh.: Hver er ágóðinn af þessu fyrirtæki?). Um það skal jeg ekki segja, en það má sjálfsagt finna grundvöll til að ganga út frá í þessu efni.

Þá er 3. liður 4. gr., 5% fyrningargjald af húsum, mannvirkjum, vjelum og áhöldum. Eftir þessu virðist meiningin, að þegar þessar eignir eru gengnar úr sjer, hafi myndast sjóður, sem nægi til að byggja þau upp aftur.

Þá kemur í 2. lið 5% afborgun af stofnkostnaði stöðvarinnar. Nú er það venjulegt, að þegar menn afborga, þá eignast þeir hlutinn, sem þeir eru að borga af.

Þetta fyrirtæki uppfyllir alveg venjuleg skilyrði samvinnurekstrar. Það er rekið með lánsfje frá ríkissjóði, sem það endurborgar á 20 árum. í frv. vantar aðeins ákvæði um það, hvernig fyrirtækið skuli rekið þegar þeir, sem leggja til hráefnið, taka við því. Þetta gjald er hreint aukagjald og alls ekki hægt að ætlast til þess, að menn afborgi fyrirtækið án þess að eignast það. Það er mjög einkennilegt, ef menn eiga, eftir að hafa greitt allan rekstrarkostnað, fyrningargjald og varasjóðsgjald, að greiða afborganir af verði stöðvarinnar án þess að nokkuð komi á móti.

Alþingi setti inn í lögin í fyrra heimild til að selja fyrirtækið samvinnufjelagi útvegsmanna, ef það yrði myndað, með þeim skilyrðum, sem þar eru sett. Jeg var að hugsa um að bera fram brtt. um þetta, en treysti mjer ekki til að orða þá breyt. svo, að vel færi til að koma frv. í æskilegt horf. Ef heimildin í lögunum frá í fyrra er notuð, leggur ríkið fje til fyrirtækisins að láni, gegn því að það verði rekið sem samvinnufjelag. En annars ætti þessi 2. liður 4. gr. að falla niður.

Jeg hefi svo ekki meira að segja um þetta að sinni, en vil skjóta því til hv. n. til velviljaðrar athugunar, hvort hún sæi sjer ekki fært að koma fram með brtt. í þá átt, sem jeg hefi óskað. Hún hefir betri aðstöðu til þess en jeg. En vilji hún ekki sinna þessu, mun jeg reyna að koma fram með brtt. sjálfur.

*Ræðuhandr. óyfirlesið.