01.05.1929
Neðri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2999 í B-deild Alþingistíðinda. (1932)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Sigurjón Á. Ólafsson:

Jeg hefi skrifað undir nál. meiri hl. á þskj. 426 og þar með lýst fylgi mínu við þetta mál. En eins og nál. ber með sjer, hefi jeg ekki skrifað fyrirvaralaust undir það. Vil jeg því gera nokkra grein fyrir því, hvers vegna jeg ber ekki fram brtt. við frv.

Þar sem svo var orðið áliðið þings, áleit meiri hl. n. ekki rjett að koma fram með brtt., er gætu orðið til þess að tefja málið. En hitt var mjer og öðrum ljóst, að nauðsynlegt var, að þessi verksmiðja gæti tekið til starfa á þessu ári. (ÓTh: En það gerir hún ekki). Það eru alls ekki litlar líkur til þess, en það fer vitanlega eftir því, hve rösklega verður að því gengið að hraða málinu og undirbúningi verksins.

Þó jeg sje nú alls ekki ánægður með það fyrirkomulag, er á að verða á þessu fyrirtæki, vildi jeg þó ekki tefja málið að þessu sinni með því að koma fram með brtt. við það, En eins og allir vita, er það hugsun okkar jafnaðarmanna, að þessi verksmiðja sje að öllu leyti eign ríkisins og rekin af því. Og eins og reynslan hefir sýnt með rekstur þeirra síldarbræðsluverksmiðja, er starfræktar hafa verið hjer á landi, fylgir þessu ekki nokkur áhætta fyrir ríkissjóð.

Jeg hafði hugsað mjer, að verksmiðjan tæki síldina með því verði, er alment er í öðrum verksmiðjum, miðað við sömu gæði. Geri jeg ráð fyrir, að það verð, er verksmiðjurnar alment greiða, sje ekki svo hátt, að þær sjái sjer ekki borgið í meðalári. Svo að loknu starfsári ætlast jeg til, að verksmiðjan borgi vissan hluta af ágóðanum til viðskiftamannanna og verkamannanna. Hvað hann yrði stór, fer eftir atvikum. Hygg jeg, að þetta fyrirkomulag mundi verða mjög vinsælt. Ef enginn hagnaður yrði, kæmi eðlilega ekkert til úthlutunar.

Eitthvað á þennan hátt hefðum við jafnaðarmenn hugsað okkur fyrirkomulagið, og hygg jeg, að það mundi hafa orðið mjög farsælt. En jeg býst ekki við því, að þessi hugmynd hafi mikið fylgi hjer á Alþingi og mun því þýðingarlaust að koma fram með brtt. í þessa átt. En tíminn mun leiða það í ljós, hvort þetta fyrirkomulag, sem frv. gerir ráð fyrir að verði á rekstri verksmiðjunnar, gefst vel eða ekki. Jeg fyrir mitt leyti hefði kosið það á hinn veginn.

Ein breyt. á þessu frv. er það, er mikið hefir verið rædd og margir óska, að verði samþ. Víkur hún að stjórnarfyrirkomulaginu. Er gert ráð fyrir því í frv., að stj. verði skipuð 3 mönnum, og er það álit margra, að það sje nóg. Er hjer líka um svo marga aðila að ræða, sem hagsmuna þykjast eiga að gæta í viðskiftum við verksmiðjuna, að þeir geta varla allir átt fulltrúa í stjórninni. En sje það álitið rjett, að útgerðarmenn eigi fulltrúa í stj., þá eiga verkamenn ekki síður rjett á því. Mundi jeg geta fallist á það, að þessir 2 aðilar fengju sæti í stj. Annars hygg jeg, að það sje ekkert deiluatriði, að ríkið verður að eiga fulltrúa í stj. Ennfremur verður það að teljast sjálfsagt, að Siglufjörður, sem leggur til svo mikið verðmætt land, og auk þess ef til vill bryggjur og hús, verði líka að eiga einn fulltrúa í stjórninni. Hitt hefir aftur á móti verið mjög deilt um, hvort síldareinkasalan ætti að eiga fulltrúa í stj. Hv. 1. þm. Reykv. taldi það t. d. ekki rjett, og beinlínis óþarft, því síldareinkasalan væri rekin af ríkinu og starfrækt beint undir þess umsjá og eftirliti. Jeg lít aftur á móti öðruvísi á þetta. Jeg álít, að hjer sje um svo nátengd fyrirtæki að ræða, að nauðsynlegt sje, að einkasalan hafi mann í stjórn verksmiðjunnar. Verksmiðjan mun aðallega verða fyrir hin smærri skip og báta, er skifta við einkasöluna. Nú getur vel farið svo, að einkasalan geti ekki tekið nema nokkurn hluta af afla þessara skipa, og getur þá verið gott að eiga greiðan aðgang að því að láta hitt ganga til verksmiðjunnar. Að þetta geti vel gengið fyrir sig, tel jeg best trygt með því, að einkasalan fái einn fulltrúa í stj. verksmiðjunnar.

Þá hefir og mikið verið rætt um 4. gr. frv. Er það í raun og veru aðallega 4. liður þeirrar greinar, sem deilt er um, nefnilega hve gjaldið í varasjóðinn skuli vera hátt. En hvergi er tekið fram, hvorki í grg. frv. nje annarsstaðar, hvort þetta gjald skuli tekið af því, er kemur til útborgunar strax, eða hvort það skuli tekið af því verði, er fæst fyrir síldina þegar búið er að vinna hana. Jeg hefi skilið þetta svo, að átt væri við hrásöluverð síldarinnar, og sami skilningur virtist mjer koma fram hjá hv. 2. þm. G.-K. Yrði það þá sama sem 10% af almennu söluverði síldarinnar. (ÓTh: Nei, við stofnkostnað verksmiðjunnar, en samkv. lögunum er ekkert ákveðið um þetta). Jeg hefi þá ekki skilið hv. þm. rjett.

Sami hv. þm. sagði, að sá skattur, er með þessu væri lagður á togarana, næmi ca. 12 þús. kr. á hvern og 3–5 þús. kr. á mótorbát. Jeg veit ekki, af hve miklum afla hann reiknar þetta, en býst við, að hann hafi miðað við meðalafla. En samkv. hagskýrslunum er meðalsíldarafli 1927 4076 mál á hin stærri skip, en 1643 mál á hin smærri. (ÓTh: Hv. þm. veit miklu betur um þetta sjálfur). Ef maður reiknar nú út frá þessu —jeg er ekki sammála því, að rjett sje að reikna með 9 kr. verði á mál, jeg held að það hafi alment verið 8 kr., miðað við 150 kg. —, þá verður þessi skattur, er hv. 2. þm. G.-K. talaði um, 3260 kr. á togara, en 1300–1400 kr. á smærri skip, miðað við hrásöluverð síldarinnar.

En hv. þm. mintist líka á, að þessum mönnum væri ætluð þátttaka í þeim arði, sem fengist við það að vinna úr síldinni. Það er ekki gott að segja, hve mikið það verður; það fer vitanlega eftir síldarmagni og verðlagi vörunnar. En jeg hefi sjeð það nýlega í norskri bók um norskar síldarbræðsluverksmiðjur, að eftir þeirri reynslu, sem fengist hefir í Noregi, þá muni þar venjulegast að fá 27 kg. af síldarmjöli úr einu máli síldar. Jeg hygg, að hjer sje óhætt að gera ráð fyrir því sama, eða jafnvel muni óhætt að gera ráð fyrir meiru. Auk þess munu fást um 14 kg. af lýsi úr hverju síldarmáli. Það getur verið, að þetta sje öðruvísi hjer, en þó hygg jeg, að nokkuð sje óhætt að byggja á norskri reynslu.

Það kom fram hjá hv. þm. G.-K., að hann taldi, að 5% skattur af söluverði síldarafurðanna væri sama sem 10% af hrásöluverði síldarinnar. — Þetta mun vera rjett. Verðmæti síldarinnar mun vera alt að því helmingi meira þegar búið er að vinna hana. Nú liggur það í hlutarins eðli, að ef hagnaður verður á rekstrinum, þá fá viðskiftamennirnir allmikla uppbót, sem ætti þá að vega fyllilega á móti því, sem þeir verða að greiða verksmiðjunni fyrir vinslu síldarinnar, er hún að sjálfsögðu verður að fá til þess að tryggja sjálfa sig.

Jeg skal svo ekki fara út í önnur deiluatriði þessa máls. Jeg býst við því, að jeg muni heldur fylgja frv. eins og það er heldur en fara að umturna því, svo að hætta sje á, að það komist ekki gegnum þingið. En annars hefi jeg óbundnar hendur um það að greiða atkv. með brtt., er fram kunna að koma og jeg gæti fylgt. Jeg býst þó helst við að fylgja því, sem hjer er fyrir hendi, enda þótt það sje ekki svo gott sem jeg og flokksbræður mínir vildum óska. — Skal jeg svo ekki tefja umr. lengur að svo stöddu.