01.05.1929
Neðri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3006 í B-deild Alþingistíðinda. (1934)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Magnús Jónsson:

* Hæstv. forsrh. var enn að láta í ljós undrun sína yfir því, hve ólík væri aðstaða íhaldsmanna nú og fyr í þessu máli. En jeg. vil benda á, hvað samþ. var í fyrra. Með leyfi hæstv. forseta ætla jeg að lesa upp 1. gr.:

„Ríkisstjórninni er heimilt að stofna og starfrækja, eða láta starfrækja, síldarbræðslustöðvar á Norðurlandi og annarsstaðar, þar sem hentast þykir“. — Hjer er ekkert um það sagt, hvort fyrirtækið eigi að rekast á samvinnugrundvelli eða sem hreint ríkisáhættufyrirtæki. Í frv. nú er sagt meðal annars: „Verksmiðjan kaupir ekki síld af framleiðendum, nema með sjerstakri heimild frá atvinnumálaráðherra, en tekur við henni til vinslu fyrir þeirra reikning“. Og svo eru lögð á menn óteljandi gjöld til að tryggja ríkissjóð. Hæstv. ráðh. er að ýmsu leyti alveg með því, að frv. hafi gengið mjög langt í þá átt, sem við íhaldsmenn vorum að tala um í fyrra, eins og hv. 2. þm. G.-K. hefir sagt. En jeg er sammála hv. þm. Dal. um það, að hjer er um ríkisrekstur að ræða, sem jeg get ekki, frekar en hann, greitt atkv. mitt, nema því aðeins, að tekið sje tillit til till. minna. Það er gaman að sjá, hvernig þær till. leysa öll vandræði. Hv. þm. Dal. benti á, að verksmiðjan yrði að hætta, ef ekki fengist nægilegt magn síldar til að vinna úr, og hæstv. forsrh. sagði, að einmitt vegna þeirrar hættu riði á háum gjöldum. Það er hugsunarvilla hjá hæstv. ráðh., því að hin háu gjöld fæla viðskiftamennina í burtu. En þetta sýnir, hvað till. mín um að gera ráðstafanir til að selja þeim verksmiðjum, sem eiga að leggja til hráefnið, er nauðsynleg.

Annað atriði í þessu máli er það, hvort gjöldin eru mátulega há í sjóðina. Fyrningargjaldið kemur ekki hjer til greina, en um hin ber fyrst og fremst að líta á það, hvort mennirnir eru að borga sjálfum sjer eða öðrum. Þeir vita, að eftir því sem meira er í varasjóði, eykst eign þeirra í fyrirtækinu. Jeg vildi því óska, að hv. n. og hæstv. stj. vildu taka till. mína til athugunar. Aðalatriðið er, hvort hjer eigi ekki að ganga inn á þá braut, sem hæstv. stj. hefir ósjálfrátt farið inn á með afborgunarlið 4. gr., um að heimila sölu fyrirtækisins til samvinnufjelaga. Það er augljóst, að þessi tvö höfuðvandkvæði leysast alveg, ef þessi aðferð er tekin.

Jeg hefi fundið það, án þess að hæstv. forsrh. upplýsti það, hvað það gerir að verkum, að 5% afborgun sje tekin upp. Í 3. gr. laganna frá í fyrra stendur: „Til greiðslu kostnaðar, er leiðir af fyrirmælum 1. gr., er ríkisstjórninni heimilt að taka lán fyrir hönd ríkissjóðs, alt að 1 miljón króna, er greiðist af tekjum stofnananna á næstu 25 árum“.

Þetta er með öðrum orðum gert að skyldu, að ríkissjóður skuli vera laus við lánið í 25 ár. En hitt er misskilningur, að ríkissjóður eigi að vera búinn að greiða lánið og um leið eignast fyrirtækið, sem sje taka tvöfaldan skatt af mönnum. Það er eins með þetta og hvert annað lán. Atvinnuvegirnir endurgreiða lánin. Ríkissjóður á ekki að greiða þetta og sitja svo uppi með eignimar. Með því móti er farið fram á hreint rán. Þetta er svo ótækt, að ef menn ekki samþ. till. mína um heimild til að selja, verður að kippa 2. eða 3. lið burt úr 4. gr.

*Ræðuhandr. óyfirlesið.