08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3074 í B-deild Alþingistíðinda. (1964)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Hannes Jónsson:

Jeg hafði ekki ætlað að tala í þessu máli, en vegna þess að hv. 1. þm. Reykv. vjek að mjer í ræðu sinni, þá þykir mjer rjett að svara honum nokkrum orðum.

Hann var að tala um samvinnuna og þóttist vera að kenna okkur samvinnumönnum. En jeg ætla bara að segja það, að mjer þykir jafnlíklegt, að hann geti kent okkur nokkuð í þeim efnum eins og ef jeg ætlaði að fara að fræða hann í einhverju um Pál postula. Sannleikurinn er sá, að hann hvorki þarf nje getur sagt okkur nokkuð til um það, hvernig við eigum að hegða okkur í þeim málum. Jeg býst við því, að reynslan hafi þegar sýnt það, að við samvinnumenn höfum full tök á okkar málum. Sannast að segja skil jeg ekki þetta írafár, sem alt í einu hefir gripið hv. þm. og ýmsa aðra hans líka núna upp á síðkastið. Þeir eru stöðugt að stagast á samvinnufjelagsskap og ágæti hans, sem þeir skilja þó ekki frekar en köttur skilur ritninguna. Og í þessu máli er þeim eins farið og konu, sem farin er að sauma barnafötin áður en hún hefir vissu fyrir því, að hún eignist nokkurt afkvæmið. (JJós: Mega þá ekki aðrir en framsóknarmenn tala um samvinnu?). Hv. þm. Vestm. getur í engu frætt menn um samvinnu frekar en flokksbróðir hans, hv. 1. þm. Reykv. (MJs Þetta er bara bönnað mont hjá hv. þm. — JJós: Þetta er nú kallaður gorgeir hjer á Suðurlandi). Jeg veit ekki, hvað þið kallið það hjer, en heima á Norðurlandi eru staðreyndir sem þessar kallaðar fullframbærileg rök.

Eins og jeg tók fram áður, þá er þetta hjal íhaldsins um samvinnu ekki ólíkt því, þegar kona fer að sauma krakkaföt löngu áður en von er á króanum. En mjer finst nú, að í þessu tilfelli sje óhœtt að bíða eftir því, að það bóli á króanum, nefnilega samvinnuhreyfingunni hjá útgerðarmönnunum íslensku, áður en farið er að sníða henni stakk. En jeg verð nú að segja það, að jeg hefi ekki mikla trú á því, að hún eigi sjer djúpar rætur hjá þeim, a. m. k. ekki þeim, er hjer sitja á Alþingi. (MJ: Bjeað mont er þetta!).

Jeg held, að hv. þm. V.-Ísf. og hv. þm. Mýr. hefði verið óhœtt að bíða með till. sínar til þess er líkur vœru á því, að hjer væri hægt að byggja á sönnum samvinnugrundvelli. Því jeg álít, að það eigi ekki að byrja á lagabókstafnum og safna svo mönnum saman undir hann. Í því er ekkert vit. Nei, fyrst verður útgerðarmönnum að skiljast, hver er tilgangur og eðli samvinnunnar; þá fyrst, er þeim hefir tekist það, er rjett að setja þeim slík lög. Samvinnufjelag, sem bygt væri á öðrum grundvelli, yrði aldrei annað en gæsalappa-samvinnufjelag. A. m. k. get jeg ekki hugsað mjer það sem heilbrigt. Nú er það og svo, að stj. er völt í sessi og skiftir því oft um, og þó stj. eigi að hafa eftirlit með þessu, þá er það ekki trygt, að ávalt sjeu menn í henni, er hafa fullan skilning á þessum málum. (ÓTh: Guði sje lof, að til er hæstirjettur!). Jeg get vel treyst þessari stj., er nú situr, til þess að skilja þessi mál, en það er því miður ekki víst, að hún sitji eins lengi og þörf er á. Jeg held því, að óþarfi sje að sníða þessari samvinnu föt á þessu þingi. (MJ: Þau mundu altaf verða of stór á hv. þm. V.-Húnv.). Þau myndu a. m. k. fara hv. 1. þm. Reykv. afskaplega illa.