08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3081 í B-deild Alþingistíðinda. (1967)
4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar
Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):
Jeg get lýst ánægju minni yfir því, að brtt. á þskj. 586 eru fram komnar. Það gefur nýjar vonir um, að mín leið verði farin í málinu, þó að jeg áliti ekki tímabært fyrir mig að bera þær fram, enda vonlaust. Jeg get þó ekki að öllu leyti verið samþykkur brtt. hv. þm., t. d. ekki um stjórnarfyrirkomulagið. Jeg tek undir með hv. 1. þm. Reykv. um, að eðlilegast væri, að sá viki sæti, sem er skipaður af síldareinkasölunni, ef hún á að skipa mann í stjórnina. En jeg held fast við það, að síldareinkasalan eigi engan mann að skipa í stj. Hv. flm. till. hafa ekki sýnt fram á það með rökum, að framleiðendur eigi ekki ríkari rjett í því efni en síldareinkasalan. Það er ekki rjett hjá hv. þm. V.-Ísf., að þó að framleiðendur vilji ekki mynda með sjer samvinnufjelagsskap. eigi þeir ekki rjett á að eiga fulltrúa í stj. Jeg get vel hugsað mjer, að framleiðendur óski ekki á fyrstu árunum að bindast samtökum um samvinnufjelagsskap. En það get jeg ekki skoðað sem sönnun þess, að þeir, sem eiga alt undir verksmiðjunni. megi ekki hafa nein áhrif á stj. hennar. Frá sjónarmiði hv. þm. sannaði þetta afskiftaleysi lítinn fjelagsþroska þeirra, en það sannar ekki, að þeir sjeu ekki færir um að kjósa mann í stjórnina. Mjer þótti gaman að hlusta á hinar heimspekilegu hugleiðingar hv. þm. V.-Ísf. um stjettir og stjettaflokka. Jeg minni aðeins á, að enn er hann í þingflokki, sem hælir sjer af því að vera stjettarflokkur. Sjálfsagt á hann þar ekki heima, og óska jeg honum að hlekkirnir springi sem fyrst.
Í sambandi við stjórnarkosninguna vil jeg benda á það, að það er ekki rjett hjá hv. þm. V.-Ísf., að þessi sjerstaka tilhögun á stjórnarskipuninni, sem frv. mælir fyrir um, tryggi það, að ekki ráði stjettaskipun mannvali. Það er ástæða til að halda, að það verði einmitt stjettaflokkarnir í landinu, sem ráða stjórnarvalinu. Það er rjett athugað hjá hv. þm. V.-Ísf., að útgerðarmenn hafi þarna mestra hagsmuna að gæta. Og þó að það megi til sanns vegar færa, sem hv. þm. sagði um hina uppspöruðu vinnu og lifandi vinnu, tekur hin lifandi vinna endurgjald sitt fyrirfram í krónum, en hin uppsparaða vinna á alt undir stj. fyrirtækisins. Þess vegna á hún rjett á að nefna mann í stj.
Um ákvæði fyrstu brtt. hv. þm. get jeg verið sammála, þó að jeg hefði heldur kosið, að framlag í sjóðina hefði ekki verið svona mikið. Jeg aðhyllist samt till., af því að þó að ekki verði myndað þetta fjelag, er ekki tekið af framleiðendum meira en 10% í stað 15% í stjfrv., því mjer skilst, að framleiðendur og viðskiftavinir verslunarinnar eigi kröfurjett til þeirra 5%, sem þeim er ætlað að greiða samkv. 1. lið 4. gr. Jeg get svo látið útrætt um þessar till. með þeirri yfirlýsingu, að jeg er þakklátur fyrir að þær komu fram, þó að jeg hefði ýmislegt við þær að athuga.
Um ræður þeirra hv. þm. V.-Húnv. og hv. 1. þm. S.-M. tel jeg ástæðulaust að fara mörgum orðum. Það kemur fyrir mig einstöku sinnum, ef eitthvað óþægilegt hefir borið mjer að höndum, að mig hefir dreymt það aftur, og miklu óþægilegra en það í raun og veru var. Og þegar jeg heyrði ræðu hv. þm. V.-Húnv., spurði jeg sjálfan mig, hvort mig væri nú farið að dreyma. Jeg man, að í fyrra hjelt hv. þm. ræður með viðlíka reiging og nú. En í vetur hefi jeg vanist alt öðru. Ræða hv. þm. áðan var óvenjulega reigingsleg, og jeg verð að segja, að þegar það er mitt hlutskifti að ræða við ýmsa hv. þm. um rekstur síldarverksmiðju, sem jeg tel mig hafa betur vit á en flestir þeirra, þá hlægir það mig, að þessi hv. þm. skuli standa upp og reigja sig yfir því, að menn skuli leyfa sjer að tala um samvinnu! Það er ekki ljett gangan í musteri samvinnunnar, ef það er goðgá að spjalla um hana í bróðerni hjer á þingi.
Hv. þm. hafa sýnt það hjer með ræðum sínum, að trú þeirra á samvinnunni er ekki meiri en svo, að þeir verða myrkfælnir, ef nefnt er á nafn að færa samvinnuna út fyrir þann ramma, sem þeir hafa einskorðað hana við. En jeg læt mjer það í ljettu rúmi liggja. Jeg er ekki samvinnufrömuður, þó að jeg verði að játa, að jeg kýs hana heldur en ríkisrekstur.