15.05.1929
Efri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3092 í B-deild Alþingistíðinda. (1978)
4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar
Frsm. (Ingvar Pálmason):
* Frv. þetta er nú komið hingað aftur frá hv. Nd., sem hefir gert á því þannig lagaðar breyt., að meiri hl. sjútvn. getur ekki gengið að þeim.
Aðalbreyt., sem hv. Nd. hefir gert, er fólgin í 9. gr., þar sem heimilað er að selja verksmiðjuna samvinnufjelagi útvegsmanna, ef það myndast. Við þetta er í sjálfu sjer ekkert að athuga, enda er heimild til þessa í lögum frá síðasta þingi og ætti þetta því ekki að spilla málinu, ef ekki væri gengið nokkuð á annan veg frá þessu en gert var á síðasta þingi.
Eins og mönnum er kunnugt, er gert ráð fyrir, að Siglufjörður leggi fram fje til verksmiðjunnar að nokkru leyti á móti ríkissjóði, og er um þetta orðið samkomulag milli ríkisstj. og bæjarstj. Siglufjarðar. Mjer finst því, að svo hljóti að verða litið á, að Siglufj. verði meðeigandi í fyrirtækinu, og finst mjög athugavert, að sala skuli fara fram að þessum aðila fornspurðum.
Auk þess vil jeg taka fram, að það er ekki víst nema bæjarstj. Siglufjarðar líti svo á, að með þessu sjeu rofnir samningar við sig, og má þetta þá verða til þess, að hún dragi til baka sitt framlag. En fari svo, er hjer um bil útilokað, að verksmiðjan verði reist á Siglufirði, en þar mlir flest með að hún eigi að vera. Jeg tel, að með þessu geti málinu verið stefnt í voða, og vænti jeg þó, að það sje ekki meiningin.
Ef tilgangurinn með þessari breyt. var aðeins sá, að samvinnufjelagsskapur — ef hann myndast — gæti átt rjett til að yfirtaka þetta fyrirtæki, þá sje jeg ekki annað en að honum hefði eins orðið náð, þótt brtt. okkar meiri hl. sjútvn. yrði samþ. Við gerum ráð fyrir, að þetta sje heimilt, en viljum aðeins koma því inn í gr., að bæjarstj. Siglufjarðarkaupstaðar verði að samþ. þessa breyt. Jeg held, að allir, sem vita, hvernig þetta mál er undirbúið, hljóti að viðurkenna, að með þessu mælir fylsta sanngirni. En ef þessi varnagli er ekki sleginn, getur sú htta af stafað, að verksmiðjunni verði alls ekki komið á fót á Siglufirði, sem þó er eini staðurinn, þar sem nokkur undirbúningur hefir verið hafinn í þessa átt. En jeg hygg, að allir sjeu sammála um það, að fyrsta síldarbræðslustöðin, sem reist verður, eigi að koma á Siglufirði.
Jeg vil því mælast til, að hv. deild samþ. þessa brtt. okkar meiri hl. sjútvn., því að þótt sagt hafi verið, að breyt. á frv. nú geti orsakað það. að frv. gangi ekki fram, þá tel jeg ekki mikla ástæðu til að álykta svo. Því að ef það er tilfellið. eins og tekið hefir verið fram, að Nd. hafi með þessari breyt. sinni aðeins meint að tryggja það, að samvinnufjelag gæti yfirtekið fyrirtækið, þá nst það alveg eins með till. meiri hl. sjútvn., og ætti því Nd. ekki að verða neitt til fyrirstöðu að ganga að frv. eftir breyt. okkar.
Hinsvegar verð jeg að taka fram, að jeg lít svo á, að með því að afgr. þetta frv. eins og það nú liggur fyrir sjeu miklar líkur til, að settur sje fótur fyrir það, að verksmiðjan komist upp í náinni framtíð. Því að það er alveg áreiðanlegt, að snúist Siglufjarðarkaupstaður svo við þessu máli, að hann gangi frá að leggja sitt fram til verksmiðjunnar, er áreiðanlegt, að engin verksmiðja verður bygð á Siglufirði á þessu ári, og líklega ekki heldur á því nsta. Og það geri jeg ráð fyrir, að hafi ekki verið meining till.- manna í Nd.
Jeg skal geta þess, að jeg tel vert, að vitna í lög nr. 49, frá 7. maí 1928, um stofnun síldarbræðslustöðva, því að þetta frv. ber ekki með sjer, að það eigi að nema úr gildi nokkurn staf í þeim lögum, enda veit jeg, að n. mun ekki hafa ætlast til þess. Þess vegna álft jeg nauðsynlegt að vitna í þessi lög, að þau eru einu lögin um stofnun síldarbræðslustöðva. Þessi lög eiga aðeins að fjalla um rekstur síldarbræðslustöðva, og í sjálfu sjer er ekki margt í þeim, sem ekki væri hægt að koma að í reglugerð. Hygg jeg, að það mundu ekki vera nema aðeins tvö atriði, sem ekki kæmust í reglugerð. En þó svo fri, sem jeg alls ekki geri ráð fyrir, að þetta frv. gæti ekki orðið að l. að þessu sinni, þá tel jeg ekkert til fyrirstöðu, að síldarbræðslustöð sje reist á Siglufirði og rekin jafnvel strax að ári. Jeg álít, að það megi fyllilega byggja starfrækslu hennar á reglugerð, sem beinlínis er heimiluð með 1. frá í fyrra. Svo að ef því er að skifta, að annaðhvort yrði þetta frv. að ganga fram óbreytt eða það yrði að falla, þá er jeg ekki í nokkrum vafa, að jeg vil heldur, að frv. falli. Með því er ekki fótur settur fyrir fyrirtækið sjálft, en með frv. eins og það er nú er stór hætta á ferð, hætta, sem getur orðið því valdandi, að fyrirtækið komist ekki á stofn fyrst um sinn.
Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða meira, en vænti þess, að hv. deild greiði brtt. okkar meiri hl. sjútvn. atkv. og leggi það svo í vald hv. Nd., hvort hún vill ganga að þeim eða láta frv. falla. En jeg trúi ekki að óreyndu, að Nd. gangi ekki að frv. með þessari breyt., því að með henni er því marki náð, sem virðist hafa vakað fyrir þeirri hv. deild, þegar hún setti 9. gr. inn. En eins og frv. er nú er nálega hgt að segja, að ekki sje forsvaranlegt af Alþingi að láta það fara frá sjer.
*Ræðuhandr. óyfirlesið.