15.05.1929
Efri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3107 í B-deild Alþingistíðinda. (1988)
4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar
Frsm. (Ingvar Pálmason):
* Það gleður mig, ef jeg hefi nú getað orðið til þess að gleðja hinn gamla sveitunga minn, hv. 3. landsk. Það verða svo margir og svo margt til þess að hryggja hann, að jeg vil ekki verða til þess að bæta þar neinu við.
Það vill nú svo vel til, að hv. þm. Ak. hefir tekið af mjer ómakið að svara því, er svara þurfti, svo jeg þarf hjer ekki að segja nema örfá orð. Jeg skal aðeins taka það fram, að hv. 3. landsk. fór eins og köttur í kringum heitt soð, er hann talaði um það, hvor rjett væri að útiloka Siglufjörð frá íhlutun um sölu verksmiðjunnar, ef til kæmi. Annars ætla jeg ekki að fara út í það, er hv. 3. landsk. sagði alment um frv. Það hefir áður verið tækifæri til þess, svo það er óþarfi að lengja nú umr. með því. Það, sem hjer er nú deilt um, er brtt. þær, er fyrir liggja, og breyt. sú, er gerð var á frv. í hv. Nd.
Því hefir verið haldið fram, og það með rjettu, að framlag Siglufjarðar til verksmiðjunnar verði um 200 þús. kr. En ef samningar haldast milli ríkisins og Siglufjarðar, þó frv. þetta verði að lögum með 9. gr. óbreyttri, þá geri jeg ráð fyrir því, að þegar að sölu kemur, þá hafi Siglufjörður rjett til þess að heimta greiðslu á sínum hluta úr ríkissjóði, en ekki af þeim, sem þá kunna að kaupa. En þá er jeg ekki viss um, að Siglufjörður geri sig ánægðan með að fá 200 þús. kr., því þótt hann væri ánægður með það nú, að fá 200 þús. fyrir það, er hann leggur verksmiðjunni til, þá hygg jeg, að enginn þori að fullyrða, að örugt sje, að hið sama verði uppi á teningnum, er til sölu kemur. En þá er tvent til: 1. Að ríkisstj. segi við Siglufjörð: Við kaupum þinn hluta af verksmiðjunni. — Verður þá ríkið að greiða það, sem Siglufjörður heimtar. En jeg býst við, að þessi samvinnufjelagsskapur verði svipaður öðrum að því leyti, að ekki verður hægt að taka allan rjett af Siglufirði um hlutdeild í því, hverjum verður selt. En jeg býst ekki við, að til þessa komi. Því verði 9. gr. samþ. óbreytt, þá verður það til þess, að Siglufjörður dregur sig til baka og neitar að láta af hendi nauðsynlegt land undir verksmiðjuna. Nú er ekki hægt að setja hana annarsstaðar, og væri það þá sama og að slá málinu á frest.
Jeg held, að Siglufjörður sje enn eini staðurinn, þar sem undirbúningur er undir slíka verksmiðju. Jeg get þó nefnt aðra staði jafnlíklega, t. d. Hrísey, Svalbarðseyri og Hjalteyri, en þar er alt óundirbúið. Jeg held því, að ekki sje neinum blöðum um það að fletta, að afleiðingin verði sú, að verksmiðjurnar komist ekki upp. Þetta nægir til að sýna fram á, að jeg get ekki samþ. brtt. hv. 6. landsk.
*Ræðuhandr. óyfirlesið.