17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3118 í B-deild Alþingistíðinda. (1997)
4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar
Jóhann Jósefsson:
Þótt jeg kveðji mjer hljóðs í þessu máli, þá vita allir, að það er eigi af því, að jeg sje frsm. minni hl. sjútvn., heldur er það hv. 2. þm. G.-K. En af því að hann er forfallaður í dag sökum veikinda, vil jeg segja nokkur orð.
Eins og kunnugt er, urðu allmiklar deilur um frv. þetta við 2. og 3. umr. vegna þess búnings, sem hv. flutningsm. hafði þóknast að færa það í. Þessar umr. enduðu á því, að frv. var fært í viðunanlegri búning fyrir þá, sem ekki kjósa ríkisrekstrarfyrirkomulagið fyrst og fremst, samkv. till. þeirra hv. þm. Mýr. og hv. þm. V- Ísf. Þeir opnuðu leið til þess, að verksmiðjan yrði rekin með samvinnusniði, ef viss tala þeirra, sem síld láta í verksmiðjuna, stofna með sjer fjelag, sem starfar samkv. núgildandi samvinnulögum. Þegar þetta væri komið í kring, skyldi stj. heimilt að selja slíku fjelagi verksmiðjuna. Í þessu horfi fór frv. frá Nd., en í Ed. hafa þeir menn, sem stefna að ríkisrekstri í öllu, sett ákvæði inn í 9. gr. frv., sem gera þessar endurbætur að engu. Í þessum ákvæðum segir, að því aðeins skuli heimilt að selja þessu samvinnufjelagi verksmiðjuna, ef 2/3 þeirra, er selja henni síld, taka þátt í stofnun þess, þar með taldir hásetar, sem eru upp á hlut á síldveiðiskipum. Nú er eigandi skips venjulega einn, en hásetar 10–15 á slíkum skipum. Hásetarnir verða því í yfirgnæfandi meiri hluta, og um leið og stofnun fjelagsins er undir því komin, hvort þeir ganga í það eða ekki, þá er auðsjeð, að verkalýðsforingjarnir ráða því algerlega, hvort fjelagið verður stofnað, því að ekki nægir eftir þessum ákvðum, þótt allir útgerðarmenn og skipstjórar vildu stofna fjelagið, ef hásetar setja sig upp á móti því. Myndi því vera auðvelt fyrir verkalýðsforingjana að ráða gerðum hásetanna, þegar litið er á vald þeirra í öðrum tilfellum.
Sá góði tilgangur samvinnumanna hjer í hv. deild, er kom fram í breyt., sem gerðar voru á frv. hjer í deildinni, er því alveg eyðilagður með ákvæðum þessum, sem stafa frá flm. frv. í Ed., sem báðir eru einokunarpostular. Einn þröskuldur enn hefir verið settur inn í frv. til að girða fyrir, að verksmiðjan yrði seld samvinnufjelagi. Þar er því bætt inn, að áður en verksmiðjan er seld slíku fjelagi, verði að fullnægja ákvæði 2. gr. laga nr. 47 1928, um stofnun síldarbræðslustöðva, og Alþingi verði að leggja samþykki á söluna. Ennfremur á bæjarstj. Siglufjarðar að leggja samþykki sitt á hana eftir till. þeirra. Þetta síðasta ákvæði mun þó hafa verið felt burtu. En eftir eru hin tvö ákvæðin, um að hásetar skuli taka þátt í stofnun fjelagsins og að salan skuli samþ. af Alþingi.
Hjer í deildinni var hinsvegar þannig gengið frá frv., að ríkið mætti selja verksmiðjuna, ef helmingur síldarseljenda stofnaði fjelagið. Hjer ber því mikið á milli, og auðsætt er, að tilgangurinn er sá, að hindra, að annað en ríkisrekstur eigi sjer hjer stað. Baráttan stendur hjer á milli einokunarmanna og hinna, og þarf ekki að efast um, hvaðan aldan sje runnin. Mjer þykir ólíklegt, að þeir samvinnumenn, sem fluttu hjer þær umbótatill. við frv., sem jeg hefi áður minst á, geri sjer að góðu, að einokunarmennirnir í Ed. hafi síðasta orðið. Því hefir minni hl. sjútvn. flutt hjer brtt. um að koma frv. í samt lag aftur.
Jeg tel ekki rjett að bera fyrir sig í þessu sambandi, að stutt sje eftir þingtímans. Tveir stærstu flokkar þingsins hafa staðið saman um það, að koma samvinnumöguleikanum inn í frv., og munu standa saman um það enn, ef þeir láta ekki einokunarpostulana kúga sig.