17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3121 í B-deild Alþingistíðinda. (1999)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Sigurjón Á. Ólafsson:

Jeg vil taka það fram, að hv. 1. þm. S.-M. mælti ekki fyrir munn allrar sjútvn., og að jeg mun sætta mig við breyt. þær, er frv. hefir tekið í Ed. Jeg heyrði ekki ræðu hv. þm. Vestm. vel, en skildist hann vera á móti því, að hásetar væru í fjelaginu. En auðvitað er sjálfsagt að telja þá jafnháa öðrum framleiðendum, enda eiga þeir oft helming framleiðslunnar.