17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3122 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Magnús Jónsson:

* Jeg skal ekki vera langorður, en jeg vona, að hv. deild sjái, að með breyt. Ed. er frv. sett efnislega í sama form og deildin vildi ekki ganga að áður. Með þessum fleyg er ætlast til og tekst að hindra, að þessi fjelagsskapur myndist. Þeir, sem eru upphafsmenn þessara breyt., ættu ekki að vera með neinn fláttskap í þessu máli. Hjer er verið að leika sama leikinn og í fyrra, þegar samþ. var að setja þann fleyg inn í frv., að ekki mætti selja samlagi útgerðarmanna verksmiðjuna nema með samþykki beggja deilda Alþingis. Nú, þegar postularnir sjá, að takast muni að fá samþykki beggja deilda Alþingis, setja þeir inn nýjan fleyg.

Auðvitað má deila í allan dag um það, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði um rjettlætiskröfu háseta til hlutdeildar í þessum fjelagsskap. Annars má segja, að hlutaskifti sjeu aðeins sjerstakt form á kaupgjaldi, og getur jafnvel verið gott form, en það á ekki að veita þeim slíkan rjett sem þennan.

Hv. 1. þm. S.-M. var á móti brtt. af ótta við að tefja fyrir málinu, svo að það næði ekki fram að ganga. Jeg tel engan vafa á, að svo mætti liðka til með þingsköpum, að málið mætti vel lúkast, þótt það færi í Sþ. Þetta er hægt, ef deildin vill ekki láta kúga sig eins og í fyrra. Jeg veit, að allir sjá, að hjer er ekki um sanngirnismál fyrir háseta að ræða, heldur eru breyt. Ed. einungis gerðar með ríkisrekstur fyrir augum. Það er eðlilegt, að jafnaðarmenn berjist fyrir þessum stefnumálum sínum. En þeir eiga að kannast við þau og ekki vera að villa á sjer heimildir.

*Ræðuhandr. óyfirlesið