17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3138 í B-deild Alþingistíðinda. (2008)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Bjarni Ásgeirsson:

Það verða aðeins nokkur orð út af ræðu hv. þm. Vestm. Hann var að brýna okkur með því, að kommúnistar væru búnir að gleypa okkur með húð og hári, af því við vildum ganga að frv. óbreyttu. En jeg vil minna á það, að frv. er nú miklu líkara því, sem afgr. var hjeðan, heldur en hinu, sem Ed. afgreiddi upphaflega. Ed. hefir því að mestu leyti gengið inn á þær breyt., er við lögðum til.

9. gr. er lítið breytt, en aðalbreyt. er í því fólgin, að 2/3 í stað helmings aðila verða að samþ. breytinguna. Þetta er hindrun, eins og jeg hefi áður sagt, en engin grundvallarbreyting. — Þá er önnur breyt. sú, að hásetar, sem eiga síld, skulu tækir í þennan fjelagsskap. Það er grundvallaratriði samvinnustefnunnar, að þeim mönnum, sem sömu skilyrði hafa, skuli frjálst að gerast meðlimir fjelaganna, ef þeir vilja. Jeg get ekki sjeð, að þetta sje nein ástæða til að fella greinina, en um aðrar verulegar efnisbreyt. er ekki að ræða. Hafi því nokkur gleypt annan, hefir Framsókn gleypt kommúnista, en þeir ekki Framsókn. Út af þeim orðum, sem fjellu hjá mjer áðan, að Íhaldsmenn hafi ekki látið dátt að samvinnu, þá ber ekki að skilja þau svo, að jeg hafi þar átt við alla íhaldsmenn. Svo er fyrir að þakka, að innan Íhaldsflokksins, einkum til sveita, eru ýmsir góðir samvinnumenn, sem hafa sýnt trú sína í orði og verki, en flokkurinn hefir hinsvegar sem heild ekki sýnt neinn sjerstakan áhuga fyrir samvinnu, og forkólfar hans ekki beitt sjer fyrir, að framleiðslutæki sjeu rekin á samvinnugrundvelli, heldur þvert á móti. Jeg sje ekki betur en að jeg hafi haft full rök að mæla, er jeg sagði, að íhaldsmenn hjer í deildinni væru ekki sjerstaklega hlyntir samvinnu, því að á síðasta vetri og nú í vetur hafa legið fyrir þinginu 2 frv., sem miðuðu að því að efla samvinnuna, en við hvorugt þessara frv. hefi jeg orðið var fylgis þeirra. Jeg sje því ekki, að of mikið sje að gert, þótt við framsóknarmenn viljum ekki stofna málinu í voða, þótt ekki gangi það fram í öllum greinum eins og við hefðum helst óskað.