17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3147 í B-deild Alþingistíðinda. (2013)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Bjarni Ásgeirsson:

Það er aðeins stutt aths. Hv. þm. Vestm. spurði um það, hvenær jeg talaði í alvöru. Jeg skal trúa honum fyrir því, að jeg tala hjer altaf í alvöru í hverju máli, enda þótt mjer sýnist ekki ástæða til að taka þátt í því þófi, sem hann nú hefir til stofnað í þessu máli. — Út af því, sem hann sagði, að jeg væri kominn í mótsögn við sjálfan mig, þá skal jeg benda honum á, að það er hægt að breyta minni háttar formsatriðum frv., enda þótt grundvöllurinn sje óbreyttur. Meginbreytinguna, sem sett var inn í frv. hjer í Nd., um að verksmiðjuna mætti selja samvinnufjelagi síldarútvegsmanna, hefir Ed. látið standa, enda þótt margir hv. þm. í Ed. vœru óánægðir með ýms fyrirkomulagsatriði þessa máls, ekki síður en þeir, sem hjer hafa talað. Jeg sje ekki betur en að aðalkjarni þeirrar samkomulagstill., sem samþ. var hjer í Nd., standi óbreyttur; og þess vegna á ekki að leggja stein í götu þess vegna formsbreytinga.

Út af því, sem hv. 1. þm. Skagf. og hv. þm. Vestm. töluðu um heimildina fyrir því, að hásetar á síldveiðiskipum megi vera í þessum samvinnufjelagsskap, skal jeg geta þess, að jeg sje ekki, að það þurfi neitt að spilla fyrir. Þó að sumir af þeim kunni að hverfa frá því aftur eftir stuttan tíma, þá er það alstaðar svo, að menn skifta um störf og viðskiftasambönd. Enda býst jeg við því, að meginþorrinn af útvegsmönnum og hásetum haldi áfram að starfa og vera reglulegir fjelagsmenn frá ári til árs. Þó að nokkur hluti af hásetum verði einskonar lausaliðar í fjelagsskapnum og óski ekki eftir að vera þar nema stuttan tíma, þá er ekkert við því að segja.

Jeg skal ekki fara langt út í þær deilur, sem hv. þm. Vestm. innleiddi hjer við þessa umr. Hann talaði um, að jeg þyrfti að dansa eftir pípu hæstv. dómsmrh. Hann er sjálfur eldri þm. og flokksmaður heldur en jeg og þekkir því vafalaust af eigin reynslu „dansinn í Hruna“. En þó að þingmenn styðji sína eigin stj. að málum, þá má hann kalla það hverju nafni sem hann vill. En hitt get jeg fullvissað hv. þm. um, að jeg mun seint dansa eftir þeim íhaldsþokulúðri, sem hann er sí og æ að túða í hjer í deildinni, þótt hann öðruhverju sje að reyna að bregða þar fyrir sig samvinnusöng — því að það verða aldrei nema „falskir tónar“.