28.02.1929
Efri deild: 10. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3156 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)
39. mál, einkasala á síld
Jón Þorláksson:
Jeg held, að þeim, sem greiða eiga kr. 1,50 af hverjum 100 kg., þyki það mesti munur, hvort þeir greiða alt eða 1/3, þótt þeir sjeu huggaðir með því, að 2/3 sje varið ríkisfyrirtækinu til hagsbóta. Þeir gtu máske sjálfir varið þeirri upphæð atvinnurekstri sínum til meiri hagsbóta en að leggja það í varasjóði síldareinkasölunnar.