03.05.1929
Neðri deild: 60. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3173 í B-deild Alþingistíðinda. (2037)
39. mál, einkasala á síld
Sigurður Eggerz:
Jeg hefi sjálfur ekki haft tækifæri til þess að rannsaka niðurstöðuna af rekstri síldareinkasölunnar nú í ár, en hv. þm. Vestm. hefir lýst henni, og sú lýsing er ekki glæsileg. Jeg stóð aðallega upp til þess að minna á það, að þegar einkasalan var hjer til umr. á síðasta Alþ., þá var ein af ástæðunum, sem færð var fram henni til stuðnings, að með henni væri hægt að takmarka söltunina og halda verðinu sæmilegu. Jeg tók það þá fram, að þessu takmarki væri ekki hgt að ná vegna þeirra, sem veiða utan við landhelgislínuna. Nú skilst mjer, að komin sje viðurkenning frá forstjórunum um það, að þetta sje ekki hægt, því að nú standa þeir í samningum við Norðmenn, og þeir samningar eru ljósasti vottur þess, að þeir finna til vanmáttar síns og sjá það, að þessu takmarki er ekki hgt að ná með einkasölunni einni saman, og þess vegna leita þeir samkomulags við Norðmenn. Þessir samningar vöktu nokkra eftirtekt nú fyrir skömmu, þegar jeg vakti athygli á þeim, og hæstv. stj. lofaði þá að láta rannsaka málið, og jeg vil vona, að það verði gert vel og rkilega. Jeg vil aðeins benda á það, að þessar samningatilraunir við Norðmennina eru hrein og bein uppgjöf einokunarpostulanna. Þeir ná aldrei neinu takmarki með þessari einokun sinni, og munu aldrei gera.
Þá var það annað atriði, sem jeg líka benti á í fyrra, en einokunarpostularnir hristu þá höfuðið, því að þá voru þeir ekki hræddir við að staðhæfa. Jeg sagði, að ekki væri hægt að láta einkasöluna starfa nema því aðeins, að hún fengi rekstrarfje, en einokunarpostularnir voru nú á alt öðru mali. Þeir sögðu, að jeg færi með eintóman hjegóma og einkasalan þyrfti ekkert rekstrarfje. En hvað er nú Komið á daginn? Hver hefir reynslan orðið? Hún er sú, að á síðasta ári varð einkasalan að fá lán til tunnukaupa, og í þessu frv., sem hjer liggur fyrir, er svo ákveðið, að ríkisstj. sje heimilt að ábyrgjast lán til einkasölunnar. M. ö. o., fyrst var farið inn með litla fingur, en nú á að fara inn með alla hendina og draga ríkissjóðinn inn í áhættufyrirtækið. Allir hljóta að sjá, að það er ekki hægt að halda uppi svona fyrirtki nema það hafi rekstrarfje, og það verður ekki gert án áhættu. Jeg tla alls ekki að fara nú að nýju að prjedika á móti þessari skaðlegu braut, einokunarstefnunni, en því ver og miður, einokunarbakterían er nú búin að gagntaka alt of marga í þjóðfjelagi voru, og það mun sýna sig á sínum tíma, hvað heilladrjúgt það verður fyrir þjóðfjelagið. Á Norðurlöndum þekkist varla einokun og vitrustu fjármálamenn heimsins fordæma hana harðlega. Jeg vísa að öðru leyti til þess, sem jeg sagði á síðasta þingi um þetta mál, en hart er að vita það, að bændur í stjórnarflokknum skuli gjalda jákvæði við því, að ríkissjóðurinn verði fyrir þeirra atbeina dreginn inn í alla þá áhættu, sem fylgir síldarspekulationum.