03.05.1929
Neðri deild: 60. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3194 í B-deild Alþingistíðinda. (2041)

39. mál, einkasala á síld

Haraldur Guðmundsson:

Jeg hafði ekki tök á að athuga nánar þær tölur, sem hv. 3. þm. Reykv. las upp, og verð jeg að játa, að þær koma mjer harla ókunnuglega fyrir sjónir. Skal jeg þó ekki fullyrða, að tölurnar sjeu rangar, en þær snerta áreiðanlega ekki kjarna málsins. Þótt rjett kunni að vera hermt um verð það, er fengist hefir í útlöndum fyrir síldartunnu, salt, tunnu og síld, þá segir það ekkert um, hvað fengist hefir fyrir síldina sjálfa, en það er vitaskuld aðalatriðið. Um sjálft síldarverðið segja því tölur hv. 3. þm. Reykv. ekkert. Nú er það svo, að verð það, sem hagstofan gefur upp, er alveg af handahófi, því að þegar síldin er flutt út, er eitthvert handahófsverð gefið upp, enda er þess getið í skýrslum hagstofunnar, að ekki megi taka það sem raunverulegt verð, heldur verð, sem áœtlað er af útflytjendum sjálfum; en mörg sendingin hefir orðið verðlaus með öllu þegar til kom, þótt áætlunarverðið hafi verið œrið hátt, þegar hún var flutt út. Til ársloka 1925 var gengismunurinn afarmikilvœgt atriði, og loks er það, að þá var verð á tunnum og salti miklu stærri hluti af þessu söluverði en nú er, því að þá var bœði salt og tunnur í langtum hærra verði. Árin 1920–21, þegar dýrtíðin var mest, var tunnuverð og saltverð afskaplega hátt. Áætlunarverðið er líka altaf sett hátt, venjulega miðað við hæsta verð, sem fengist hefir, því að útflutningsgjaldið er miðað við tunnufjölda, en ekki við verðmæti. Ef tölur hv. þm. œttu að gefa raunverulega hugmynd um verð á hrásíld, þarf því að taka margt til greina, sem hann slepti, og yrði þá útkoman öll önnur og lakari. í sumar fengust 20–22 kr. fyrir hvert mál af hrásíld til söltunar á bryggju. það er verðið, sem á að miða við. Aflaleysisárið 1926 var verðið a. m. k. 4–5 kr. lœgra.