13.05.1929
Neðri deild: 67. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3270 í B-deild Alþingistíðinda. (2055)
39. mál, einkasala á síld
Sigurður Eggerz:
Mjer þykir hart, ef jeg fæ ekki fyrir minn flokk að tala um þetta mikilsverða mál, einkum þar sem jeg ætla að benda á skekkju í frv., sem er í ósamræmi við sjálfa stjórnarskrána. Það er óþolandi ófrelsi að skera niður umr. um þetta mál og útiloka heila flokka frá því að láta uppi skoðun sína á því.