13.05.1929
Neðri deild: 67. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3282 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)

39. mál, einkasala á síld

Frsm. meiri M. (Sveinn Ólafsson):

Jeg tel mjer óskylt að svara þeim eldhúsdagsumr., sem fram hafa farið við fyrri hl. þessarar umr. og snerta útflutningsnefndina og störf hennar. Flestir ræðumennirnir, sem móti mæla frv., hafa vikið að henni og fundið að störfum hennar. En þar sem enginn er hjer til andsvara fyrir n. hönd, verð jeg að telja þessar árásir á n. með öllu óforsvaranlegar.

Jeg skal geta þess, að af einstökum aðfinslum í þessa átt kunni jeg verst ummælum hv. þm. N.-Ísf. Hann komst svo að orði um einn nafngreindan umboðsmann síldareinkasölunnar, að hann hefði óhæfur verið til starfans og ekki borið skyn á verk sitt. Þessar slettur finst mjer alveg ósæmilegar, og í þessu sambandi má geta þess, að samherji hv. þm. N.-Ísf., hv. þm. Vestm., hafði einmitt hælt þessum sama manni fyrir gætni og framsýni í starfinu.

Þannig hafa ummæli þessara hv. þm. verið sitt á hvað og alveg utan við umræðuefnið, sem er brtt. á þskj. 317. Jeg vil segja það alment í tilefni af þessum aðfinslum, að jeg tel meiru varða, að forstöðumenn og erindrekar síldareinkasölunnar sjeu vandaðir menn og þektir að ráðsvinnu heldur en að þeir hafi einhvern fjesýslustimpil frá einhverri verslun eða sjeu með einhverju verslunarskólaprófi.

Jeg ætla ekki að láta þessa mörgu mótmælendur frv. teygja mig til þess að fara að elta ólar við hverja aðfinslu þeirra fyrir sig, heldur drepa lítið eitt á þær aðfinslur, sem komið hafa fram hjá þeim sameiginlega. Það er þá einkum hin svonefnda ríkisábyrgð, sem þeim hefir orðið tíðrætt um og telja hana mestu áhættu. Þessi hætta er þó ekki meiri en svo, að það er tiltölulega lítil upphæð, sem ríkissjóði er ætlað að ábyrgjast, samanborið við umsetningu fyrirtækisins. Í fyrra varð umsetning einkasölunnar á 6. milj. kr. í frv. er gert ráð fyrir því, að meðan varasjóður er að vaxa megi ríkisábyrgð fyrir láni til rekstrar nema alt að 1/2 milj. að viðbættum varasjóði. og gildir það aðeins til ársloka 1930. Hjer er því um tiltölulega litla og takmarkaða ábyrgð að ræða, sem hverfa mun með öllu á stuttum tíma með þeim auknu tekjum varasjóðs, sem frv. gerir ráð fyrir. Þessi bráðabirgðaábyrgð er afleiðing af því, að einkasölunni er ætlað að útvega tunnur, salt og efni til verkunar síldinni að meira leyti en áður, sem líka hlýtur að vera viðskiftamönnunum mikið hagræði.

Verkun síldarinnar eftir ákvæðum frv. útheimtir líka aukið rekstrarfje. en frv. virðist búa fulltryggilega um endurgreiðslu lánsfjárins.

Jeg sje ekki ástæðu til að svara hv. þm. Dal. Hann talaði mest um þingsköp og kvartaði yfir því, að umr. væru takmarkaðar, en jeg sá enga ástæðu til að rita neitt hjá mjer af því, sem hann sagði, í því skyni að svara honum, enda var það mestmegnis þessi gamla hrakspá um ófarnað einkasölufyrirtækja.

Hv. 2. þm. G.-K. spurði, hvernig ætti að skilja þau ákvæði 1. gr., að einkasalan hefði rjett til útflutnings á allri síld, — hvort hjer væri einnig átt við síldarafurðir. Það ætti að vera öllum ljóst, að hjer er aðeins átt við saltaða, sykraða og kryddaða síld, en alls ekki það, sem unnið er úr síld, eins og síldarmjöl, enda var ekki spurt vegna þess, að hv. þm. vissi þetta ekki eða sæi, — ástæðan var víst önnur.

Þá hafa nokkrir hv. þm. fundið að því, að lagt er til, að útflutningsnefndarmenn megi ekki taka þátt í síldarútflutningi eða síldarverslun. Mjer finst alveg eins eðlilegt að banna þetta eins og að banna bankastjóra að reka sjálfur peningaverslun úti í bæ. (ÓTh: Annað er lífvænleg staða, en hitt ekki — það er munurinn). Mjer finst nær væri að undanþiggja þessu ákvæði skrifstofuþjóna, en um forstjórana getur það alls ekki átt við. Um þetta og önnur formsatriði má auðvitað deila endalaust, en jeg ætla ekki að eyða meiri tíma til andsvara hártogunum mótstöðumanna. Vil jeg ekki tefja málið með því að egna þá upp að nýju. (ÓTh: Það er engin hætta á að tala núna, við erum allir dauðir og fáum ekki að svara). Ekki allir, — a. m. k. lifir einn andmælandinn ennþá góðu lífi. (PO: Má jeg skjóta inn í og gera eina fyrirspurn? Hvernig á að skilja orðið skrifstofuþjónn í 7. gr.?). Jeg hefi áður svarað þessu. (PO: Nær þá orðalagið einnig til skrifstofustjóranna?). Já, jeg lít svo á, en um skilning þessa orðs virðist óþarft að spyrja. Það mun verða skýrt á sínum tíma af lögfræðingunum. (PO: Er þetta skýring hv. frsm.?). Já, þetta er mín leikmannsskýring á ákvæði greinarinnar.