16.05.1929
Neðri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3302 í B-deild Alþingistíðinda. (2067)
39. mál, einkasala á síld
Sigurður Eggerz:
Jeg verð að segja það, að jeg varð fyrir nokkrum vonbrigðum í þeim svörum, sem hv. frsm. gaf mjer viðvíkjandi nokkrum aths., sem jeg hafði gert við þetta frv., og sem hv. 1. þm. Skagf. hafði ítrekað og bætt nokkrum við, sem jeg hafði ekki tekið eftir.
Mjer finst nú, að það ætti ekki að geta verið flokksmál, að reynt væri að ganga þannig frá löggjöfinni, að hún bryti ekki bág við þær grundvallarreglur, sem siðaðar þjóðir yfirleitt byggja sína löggjöf á. Þetta atriði finst mjer, að ekki ætti að vera flokksmál, og síst finst mjer, að það ætti að vera flokksmál hjá þeim mönnum, sem hafa viljað fara alveg sjerstaka leið til þess að vanda löggjöfina, með því að setja á stofn sjerstaka n. í því skyni. Jeg ætla ekki að fara að ræða um hana, því að það hefir þegar verið sagt svo mikið um þá nefndarskipun, en ef einhver hugsun liggur á bak við stofnun hennar, þá hlýtur það að vera sú, að löggjöfin komi fram í nýrri og betri mynd. Jeg hefi að vísu ekki trú á því, en mjer finst, að frá sjónarmiði þeirra manna, sem hafa tekið þá stefnu upp á stefnuskrá sína að bæta löggjöfina að nokkru, að þeir ættu að vera opnir fyrir því, þegar á það er bent, að verulegir gallar eru á þeirri löggjöf, sem þeir einmitt eru að smíða í augnablikinu.
En svo jeg víki ennþá að þeirri aths., sem jeg gerði við 1. umr., þá liggur það alveg í hlutarins eðli, að það er ekki hægt að ákveða, að löggjöfin um einkasölu gildi um þá síld, sem veidd er utan landhelgi og farið er með beint á markaðinn. Það er ekki hægt fyrir oss að ná í hvorki Norðmenn nje Svía eða aðra, sem salta síld fyrir utan línuna. Eins er það alls ekki hægt fyrir oss að láta löggjöfina ná til íslenskra skipa, sem salta fyrir utan línuna og fara með vöruna beint á markaðinn. Nú verð jeg að líta svo á, að á þessu máli geti ekki verið nokkur vafi, og jeg verð þá að beina þeim orðum mínum til hv. frsm., að hann taki þetta til alvarlegrar athugunar og að hann láti ekki fara hjeðan úr þinginu löggjöf, sem er þannig vaxin, að hún gefi ákvæði um þá hluti, sem löggjöf getur alls ekki náð yfir. Þess vegna væri sannarlega ástæða til þess fyrir hv. n. og hv. frsm. hennar að láta taka þetta mál út af dagskrá og leiðrjetta þessa höfuðkórvillu, sem búið er að sýna fram á, að sje í frv.
Jeg get ekki ímyndað mjer það, að nokkur maður geti í alvöru reynt að standa hjer upp í þessari hv. deild og segja það, að löggjöfin um einkasöluna geti náð til þeirra skipa, sem fiska fyrir utan landhelgislínuna, og farið svo beint með síldina á markaðinn.
Þá kem jeg að 3. gr., og satt að segja finst mjer, að gallarnir sjeu mestir á 3. gr. og svo nærgöngulir við stjórnarskrá landsins, að jeg verð að leyfa mjer að beiðast þess, að forseti úrskurði, hvort það sje rjett að láta þessa grein, eins og hún er nú, koma hjer til atkv. Jeg verð að halda því fram, að það stappi mjög nærri, að hún sje í stríði við stjskr. landsins. Það er nefnilega ótvírætt, að þau ákvæði eru sett í þessa gr., sem hreint og beint svifta menn eignarrjettinum, án þess að þeir sömu menn hafi unnið nokkurn hlut til saka, til þess að vera sviftir honum. Það eru hjer ótvíræð ákvæði um það, að ef maður stelur nokkrum tunnum af síld og selur þær einkasölunni og hún greiðir honum verð fyrir, og svo kemur maður sá, sem síldina átti, til einkasölunnar og segir: Þetta er síldin mín, — þá fær hann það svar hjá henni: Mig varðar ekkert um það; þú færð hvorki síldina þína aftur nje andvirði hennar. — Hvað á svo þessi maður að gera? já, hann getur náttúrlega snúið sjer til þjófsins, en það er venjulega svo, að það þýðir ósköp lítið að snúa sjer til þeirra, því að andvirðið fæst sjaldnast hjá þeim! Jeg get þess vegna ekki sjeð annað en að það sje gengið svo nálægt eignarrjettinum og þeirri vernd, sem stjskr. veitir honum, að það sje vafasamt, að bera megi þessa gr. upp hjer í deildinni.
Jeg skal geta þess, að í danskri löggjöf kringum 1700, þegar einvaldskonungarnir rjeðu í Danmörku, þá var gefin út tilskipun um stofnun hins svokallaða „Assistent“-húss, og í þeirri tilskipun eru samskonar ákvæði eins og nú er á því herrans ári 1929 sett í lögin af þessum hv. síldareinkasölupostulum. Þar var nefnilega sett það ákvæði, að þó það væru þjófstolnir hlutir, sem væru pantsettir á húsinu, þá var ekki hægt að taka andvirðið frá því. Þegar svo grundvallarlögin voru gefin, hafði þessi tilskipun verið athuguð; hún gilti fyrst um sinn, en nú hefir hún verið afnumin. En á meðan hún var í gildi, þá álitu þjófarnir, að þeir væru miklu öruggari að versla við Assistenthúsið heldur en við aðra okrara, svo að af því leiddi, að það var verið að ýta undir þeirra starfsemi með þessu ákvæði.
Jeg verð að líta svo á, að það sje meira en lítill blettur settur á íslenska löggjöf með því að taka upp sömu grundvallarreglu og einvaldsherrarnir tóku upp árið 1700 og sem fyrir löngu er búið að kveða niður. Mjer skilst, að kurrinn í kringum þessa löggjöf muni verða nógu mikill, þótt ekki sje verið að leiða inn í hana grundvallarreglur, sem beinlínis eru hættulegar til fordæmis og í stríði við stjórnarskrána, og ef til vill hættulegastar fyrir það, að þær verði síðar teknar upp í aðra löggjöf. Jeg verð að líta svo á, að sá hugsunarháttur sje ekki orðinn ríkjandi á Alþingi, að menn vilji ganga framhjá ákvæðum stjskr. um eignarrjettinn. Þess vegna er það, að ef hv. frsm. vill ekki láta taka málið út af dagskrá og gera brtt. í þessu efni. Þá verð jeg að halda fast fram þeirri ósk mínni við hæstv. forseta, að hann kveði upp úrskurð um það í deildinni. hvort þessi liður 3. gr., sem jeg hefi gert að umtalsefni, megi koma til atkv. hjer í deildinni.
Þá verð jeg að segja það, og taka þar undir með hv. 1. þm. Skagf., þegar hann gerði sína aths. um það, sem segir í 8. gr. frv., með leyfi hæstv. forseta:
„Ennfremur falla úr gildi samningar, sem koma í bága við lög þessi, þótt gerðir hafi verið áður en lög þessi öðluðust staðfestingu“.
Jeg verð að líta svo á, að það væri ekki lítill ógreiði gerður viðskiftalífi okkar þjóðar, ef það væri farið að víkja frá þeirri grundvallarreglu, að menn megi reiða sig á samninga, sem menn gera í fullu samræmi við gildandi lög í landinu. Það er, satt að segja, það óbilandi traust, sem menn hafa á því, að þeir geti gert samninga, sem þeir geti reitt sig á, sem er hinn raunverulegi grundvöllur undir öllu heilbrigðu viðskiftalífi, ekki aðeins þessarar þjóðar, heldur allra annara þjóða. Ef farið er að leiða það inn í þessa löggjöf, að samningar, sem búið er að gera áður, skuli falla úr gildi, þá fer jeg að ætla það, að heldur muni fara að draga úr vinsældum kringum þessa löggjöf.
Jeg ætla ekki að fara að ræða efni frv. nú, en skal aðeins vísa til þeirrar gagnrýni, sem jeg hefi gert á frv. áður. En í þessu eru brotnar æðimargar höfuðreglur, sem hingað til hafa þótt mega vera í friði fyrir löggjöfinni. Það er hjer farið að löggefa fyrir utan landhelgislínuna: bað er farið að kippa, á mjög lævíslegan hátt, fótunum undan eignarrjetti manna. og það er farið að leysa ákvæðin um það, að samningar, sem menn hingað til hafa trúað, að menn mættu reiða sig á, skuli vera ógildir, ef þeir samrýmast ekki við þessi lög. Þar með eru samningsmenn útilokaðir frá að ná á nokkurn hátt rjetti sínum gagnvart þeim, sem þeir sömdu við. Það fer hjer sem oftar, að ein syndin býður annari heim. Það er hætt við, að hin mikla einokunarsynd ætli að bjóða nokkuð mörgum öðrum syndum heim, þar sem verið er með ýmsum ákvæðum einokunarlöggjafarinnar að grafa undan þeim frumreglum, sem löggjöf okkar Íslendinga hvílir á.