20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (207)
17. mál, eftirlit með skipum og bátum
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil vekja athygli hv. þm. Borgf. á því, að í aths. við 3. gr. er ekki sagt, að frv. þetta hafi ekki aukin útgjöld í för með sjer, heldur er sagt, að það hafi ekki aukin útgjöld fyrir ríkissjóð í för með sjer. Hitt er alveg rjett, að það, sem að er stefnt, er það, að þetta eftirlit eiga bátaeigendur að borga. Það eru bifreiðaeigendurnir, sem eigi að borga bæði skírteini og skoðun bifreiða, og sú nefnd, sem um þetta mál fjallar, á að taka það til athugunar, hvort ekki eigi sama að gilda hjer. Þegar trúnaðarmaður stj. kemur með slík mál til stj., álít jeg, að hún eigi að bera þau undir þingið.