02.05.1929
Neðri deild: 59. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3325 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

37. mál, verkamannabústaðir

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg sje, að hv. frsm. minni hl. ætlar ekki að tala strax, og get jeg þá lokið af að tala nokkur orð með þeim brtt., sem jeg ber fram á þskj. 429.

Jeg verð þegar að geta þess, að hjer er um stórt mál að ræða, og það er þess fyllilega vert að gera grein fyrir því með ítarlegri ræðu. En það er nú svo, þegar langt er liðið á þing, að svo mörg störf kalla að, og hefir mjer ekki unnist tími til neins undirbúnings í þessu efni.

Hinsvegar geri jeg ráð fyrir, að hv. þm. hafi kynt sjer þessar till. og fullkomlega gert sjer grein fyrir, hvað bak við þær liggur.

Jeg man ekki, hve oft er búið að bera fram till. um að bæta kjör þessara manna, sem hjer um ræðir, svo þeir geti fengið viðunandi hús yfir höfuðið, en svo mikið er víst, að ekkert hefir náð framgangi hingað til. En sá grundvöllur, sem slíkar uppástungur hvíla á — a. m. k. á síðasta þingi og nú —, er að mínu áliti ekki sem heppilegastur. Ekki verður því neitað, að bæði í þessum bæ og sennilega í nokkrum fleiri bæjum er svo mikil þörf að hjálpa þeim, sem eru minni máttar, til þess að fá viðunandi húsaskjól. Og jeg álít, að samhliða því, sem það opinbera hefir gert sjerstakar ráðstafanir til þess að bæta aðstöðu fólksins í sveitunum til að eignast betri húsakynni, þá sje ekki nema rjett, að ríkið gerði líka ráðstafanir til þess að hjálpa fátæklingum í kaupstöðum og kauptúnum.

Það, sem mjer þótti rjett, að kæmi fram nú frá þeim flokki, sem jeg tilheyri, er bending um það, hvað a. m. k. sumir menn í flokknum álíti rjett að gera í þessa átt.. Og sá grundvöllur, sem bent er á, er, að í stað þess að bæjarfjelögin annist þetta mál, eins og frv. gerir ráð fyrir, þá sje það gert af samvinnufjelagsskap.

Annars er um þessar till. að segja, að þær fjalla um fjöldamörg einstök atriði, og jeg verð að segja, að mjer dettur ekki í hug að halda fast eða einstrengingslega fram þeim ýmsu atriðum, hverju fyrir sig, sem borin eru fram hjer. Það, sem jeg vildi sjerstaklega benda á, er grundvöllurinn, sem slíkar aðgerðir ættu að hvíla á. Þess vegna ber að skoða þessar brtt. mínar sem grundvöll til þess að byggja á endanlega skipun þessara mála og sem framrjetta hönd mína og nokkurra flokksmanna minna, sem álfta, að hið opinbera eigi einnig að veita aðstoð sína á þessu sviði.

Hvað snertir einstök atriði þessa máls, þá er jeg fús til þess að ræða þau, hvort heldur er til hægri eða vinstri. Fara brtt. mínar margar hverjar í þá átt, ýmist að breyta gr. frv. algerlega eða setja nýjar gr.

Þetta er það, sem jeg vildi hafa sagt alment um málið. En nú mun jeg fara stuttlega yfir brtt. mínar. Komi svo ítarlegar aths. við þær, mun jeg víkja nánar að þeim síðar.

Með 1. gr., eins og jeg legg til að hún verði, er tvennu slegið föstu, sem er ólíkt því, er frv. gerir ráð fyrir. Fyrst því, að ekki skuli eingöngu lánað óbreyttum verkamönnum, heldur skuli ákvæði gr. líka ná til starfsmanna ríkis og bæjar. Vil jeg í þessu sambandi minna á það, að auk þess, sem þessar till. um að styrkja verkamenn til bygginga hafa komið fram, þá hafa starfsmenn ríkisins einnig óskað þess, að ríkið veitti þeim aðstoð sína til þess að byggja yfir sig. Lít jeg svo á, að þeir geti vel fallið undir þetta. Ennfremur segir 1. gr., að þessi lán skuli því aðeins veitt, að færð hafi verið rök að því, að dómi atvmrh., að þörf sje slíkrar opinberrar aðstoðar. Geri jeg ráð fyrir, að þörfin sje mjög mismunandi, eftir því hvar er á landinu. T. d. get jeg búist við því, að á Seyðisfirði sje engin þörf fyrir slíkt, því þar er fólki heldur að fækka en fjölga. En þar sem sannað er, að slík þörf sje fyrir hendi, skal stofna lánssjóði þá, er 1. gr. gerir ráð fyrir.

Hv. 1. þm. N.-M. hefir borið fram brtt. við þessa brtt. mína, sem er þess efnis, að byggingarsjóðir verði ekki aðeins stofnaðir í kaupstöðum, heldur einnig í kauptúnum. Jeg vil nú að vísu ekki vera á móti henni, en jeg held þó, að hún verði til þess, að meiri vandkvæði verði á þessu í framkvæmdinni. Það er sumstaðar svo, að kauptúnin eru ekki hreppur út af fyrir sig, og þyrfti því að gera fyllri ráðstafanir til þess að færa þetta inn í löggjöfina. En sje þar sama þörf fyrir hendi, þá er vitanlega sjálfsagt að bæta úr henni, svo sem rjettmætt er.

Önnur aðalbreyt. er það, hvernig á að afla fjárins. Það getur vitanlega verið álitamál, hvernig þess skuli aflað og hve mikið það skuli vera, en jeg álít, að hæfilegt sje að byrja svo sem jeg legg til. Finst mjer þar allmyndarlega af stað farið, en þó má það ekki minna vera í stórbæ sem t. d. Reykjavík. Gæti það líka vel komið til mála að binda sig ekki við fasta krónutölu, heldur láta eitt gilda hjer og annað þar, eftir því sem þörfin krefur.

Þá kem jeg að 3. brtt. Hún er um það, hvernig lán skuli veitt. Geri jeg ráð fyrir því, að þetta verði trygg lán. Skulu eigendur sjálfir leggja til 15% af byggingarverði húsanna. Og þegar bæjarsjóður leggur svona mikið til, þá ættu þessi lán ekki að vera hættuleg, ef vel er að öðru leyti frá þeim gengið.

Svo er það aðalgreinin, sem sje 5. gr. Segir hún til um það, hvaða skilyrði eru fyrir því að fá þessi lán. Er aðaláherslan lögð á það, sem talað er um í 2., 3. og 4. lið 5. gr. Eru þessi ákvæði hliðstæð ákvæðum þeim, sem sett eru í 1. um byggingar- og landnámssjóð. Kröfurnar eru þær, að húsin sjeu vel gerð. Legg jeg mikla áherslu á það, að þeim fylgi öll nútíma þægindi og að sjerstakur lóðarblettur fylgi hverju húsi. Í 3. lið er þess getið, að ekki megi lána til þeirra, er hafa haft meira en vissa krónutölu í árstekjur. getur að ákvæði orkað tvímælis, en þó hygg jeg, að 5. þús kr. sjeu ekki fjarri sanni.

Mjer datt í hug að hafa þessa upphæð ekki fastákveðna, heldur skyldi hún vera breytileg, eftir því hvort hlutaðeigandi hefði marga ómaga á framfœri eða ekki, og jeg held, að yfirleitt ætti að taka tillit til ómegðar og þarfa.

4. atriðið er mjög þýðingarmikið og legg jeg mikla áherslu á það, að þetta sje rekið á samvinnugrundvelli. Skal hlutaðeigendum gefinn kostur á að eignast húsið síðar, ef þeir vilja. Þetta er grundvallaratriði og skilur þar á milli frv. og brtt. minna.

Ákvæði 5., 6., 7. og 8. liðs þessarar gr. miða að því að tryggja það, að ekki sje bygt á óhæfilega dýrum lóðum, og að því að hindra það, að þessar byggingar, sem hið opinbera hefir hjálpað til að byggja, lendi í braski. Einnig eru þar ákvæði til tryggingar góðu viðhaldi húsanna.

Annars vil jeg ekki lengja umr. nú þegar með því að fara nánar út í einstök atriði. Jeg sje ekki ástæðu til þess að fara út í það, hvernig stjórn þessara mála er fyrir komið eða hvernig reikningsskilum skal háttað. Yfirleitt álít jeg ekki, að hinar seinni gr. gefi tilefni til umr.

Að lokum er það tvent, sem jeg vildi segja, áður en jeg skil við þetta mál. Fyrir okkur liggur nú í þessari hv. deild frv. til nýrra ábúðarlaga. Er í því stungið upp á nýrri ábúðarlöggjöf, sem á að miða að því að gera sjálfa sig óþarfa. Því góð ábúðarlöggjöf sem á að stefna í þá átt, að ekki þurfi að nota nein ábúðarlög, vegna þess að allir eigi jarðir sínar sjálfir. Og það, sem jeg álít, að þetta frv. eigi að gera, er einmitt það, að hjálpa mönnum í kaupstöðum til þess með hjálp samvinnufjelagsskapar að eignast hús fyrir sjálfa sig og fjölskyldu sína. Hús, með dálitlum bletti í kring, þar sem þeir geti lifað góðu og hollu lífi.

Jeg held, að það sje fátt betra til þess að tryggja aðstöðu þjóðfjelagsins í heild sinni en að börnin geti alist upp í góðu og skemtilegu umhverfi og lært að elska land sitt. Það er þá síður hætt við því, að þau lendi út í öfgastefnum nútímans, er þau þroskast og ná fullorðinsaldri.

Svo eru það nokkur orð út af þeirri hugsun, er kemur fram í nál. meiri hl. Hefir hann lagt á móti frv. vegna þeirrar ástœðu meðal annars, að það geti orðið til þess, að erfiðara verði að halda fólkinu í sveitunum. Sje því verið að vinna á móti þeirri viðleitni, er nú sje efst á baugi, að halda fólkinu í sveitunum og vinna að viðreisn landbúnaðarins. Út af þessu vildi jeg gera eina persónulega játningu.

Það var á sumardaginn fyrsta, að börnin hjer í bœnum voru kölluð upp í barnaskólaport, og skyldi þar taka mynd af þeim öllum í einum hóp. Voru þar saman komin líklega nokkur þúsund börn. Voru þau svo í því góða veðri, sem þá var, látin ganga í kringum tjörnina. Það vildi svo til, að mjer varð gengið út að glugga mínum um þetta leyti, og sá jeg þá allan þennan fríða hóp á göngu sinni. Var fylkingin svo löng, að hún náði meir en í kringum alla tjörnina. — Mjer flaug þá í hug, hvað þetta væri mikill hluti allrar þjóðarinnar og hve áriðandi það væri fyrir þjóðfjelagið, að vel væri sjeð fyrir uppeldi og líðan þessara barna. Og jeg verð að játa, að mjer varð þá ljósara en áður, hversu rík skylda hvílir á þjóðfjelaginu um að sjá um, að þetta fólk fái að alast upp við sem bestan aðbúnað og umhverfi. Eru það því ekki síst áhrif fá þessu, sem eru því valdandi, að jeg flyt einmitt nú slíkar till. og þessar, sem eiga að vera til þess að tryggja það, að sú unga kynslóð geti vaxið upp við svo góð kjör, að hún hafi skilyrði til þess að verða góðir og nýtir borgarar.