04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3371 í B-deild Alþingistíðinda. (2092)

37. mál, verkamannabústaðir

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg tók það skýrt fram, er jeg bar fram brtt. á þskj. 429, að þær bæri að skilja sem yfirlýsingu mína um það, að hinu opinbera bæri að bæta úr að einhverju leyti hinni brýnu þörf, sem er til á þessu sviði, og að jeg vildi benda á leið, sem mætti fara. Þetta er nú ekki það eina, sem fram hefir komið á þessu þingi af sama tægi. Frv., sem brtt. mínar eiga við, var borið fram af hv. 2. þm. Reykv., og má skoðast sem till. jafnaðarmanna í málinu. Og af hálfu Íhaldsflokksins — eða tveimur mönnum úr honum í hv. Ed. — hefir líka verið borið fram frv., sem bannar kjallaraíbúðir, sem telja verður hættulegastar. Frá öllum aðalflokkum þingsins hefir því komið fram viðurkenning um, að eitthvað þurfi að gera, og fulltrúi frjálslynda flokksins hefir einnig viðurkent þörfina. Jeg tók það fram, að brtt. mínar bæri ekki að skoða sem fastmyndað form, og við því er heldur ekki að búast, að það verði myndað, meðan allir eru öðrum störfum hlaðnir. Till. mínar ber því nánast að skoða sem samkomulagsgrundvöll, og er jeg því fús á að taka til athugunar þær till., sem fram koma, og ræða þær hjer.

Eftir að hafa heyrt ræður þeirra hv. 6–8 þm., sem tekið hafa til máls, vil jeg tjá mig fúsan til þess að taka þær bendingar, sem fram hafa komið, til nánari athugunar í samráði við n. til 3. umr. Jeg vil leyfa mjer að drepa á atriði, sem komu fram hjá hv. 1. þm. N.-M., hv. þm. Borgf. og hv. 1. þm. Skagf. Jeg tók það skýrt fram, að jeg miðaði till. mínar við stærri kaupstaði eingöngu. Og jeg álít, að það þurfi að gera víðtækari breytingar á frv. en gert er í till. hv. 1. þm. N.-M., ef þetta á líka að gilda fyrir smærri kauptún. Nú er það t. d. svo með sum smærri kauptúnin, að þau eru ekki hreppur út af fyrir sig. Væri þá ranglátt að leggja þennan skatt á hinn hluta hreppsins, sem ganga á til byggingar í kauptúninu. En hv. 1. þm. N.-M. hefir nú tekið brtt. sína aftur til 3. umr., og má þá laga þetta með nýrri till.

Ýms þau atriði, sem hv. þm. Borgf. drap á, eru þannig vaxin, að sjálfsagt er að taka þau til friðsamlegrar athugunar á milli umr., t. d. hvort setja skuli ákvæði um, hve há ábyrgð ríkisins megi mest vera, eða hvort rjett sje að lána 85% út á virðingarverð húsanna. Í sambandi við þetta síðara vil jeg taka það fram, út af því, sem hv. 1. þm. Skagf. sagði, að það liggur í augum uppi, að 15%, sem til viðbótar þarf, eiga þeir, sem byggja, að leggja fram.

Þá drap hv. þm. Borgf. á það, hvort ætlast væri til, að í þessum húsum væru höfð nútímaþægindi. Það dettur víst engum í hug, að hjer eigi að fara að stofna til þess „luksus“, er tíðkast í hinum dýru og vönduðu íbúðum efnamanna þessa bæjar. Jeg sje því ekki ástæðu til að fara að ræða þetta atriði, en hvað hitt atriðið snertir, að lóðarblettur fylgi hverri íbúð, verð jeg að segja það, að jeg fyrir mitt leyti legg mikla áherslu á, að svo verði. Ef ríkið og bæirnir á annað borð taka höndum saman um að bæta íbúðirnar í kaupstöðunum, virðist sjálfsagt, að einhver grænn blettur fylgi hverri íbúð, því að það er mikið atriði til þess að fólkinu geti liðið vel og börnin haft betri aðstöðu til leika og afþreyingar.

Ýmislegt það, sem hv. 1. þm. Skagf. nefndi, skal jeg ekki ræða frekar en jeg þegar hefi gert. Um það atriði út af fyrir sig, hvort ríkið eigi að borga þóknun til þeirra manna, sem stjórna þessum byggingarsjóðum, eða hvort rjettara sje, að ríkið og bæirnir borgi þetta í sameiningu. má auðvitað deila í það endalausa. Mjer virðist þó, að það gæti verið rjett að láta þennan kostnað greiðast að hálfu af hvorumtveggja þessara aðilja.

Út af því, sem hv. 1. þm. Skagf. sagði um lóðirnar, skal jeg aðeins segja það, að verið getur, að þetta megi athuga betur, en tilgangurinn með þessari till. er mjög ljós, þ. e. að stofna ekki til ódýrra bygginga á óhæfilega dýrum lóðum. Af þessari ástæðu er ætlast til, að bæirnir leggi til ódýrar lóðir, og af sömu ástæðu er ríkið tekið inn í þetta. Því að víða stendur svo á, að það á lóðirnar, sem kaupstaðirnir standa á. Svo er t. d. bæði í Vestmannaeyjum og á Siglufirði. Jeg veit, að hv. 1. þm. Skagf. er mjer sammála um, að þessi tilgangur er rjettur, svo að húsin verði ekki dýr, vegna þess að þau eru bygð á dýrum lóðum. Og þessi tilgangur næst með þessari till.

Hv. þm. Dal. vjek að því, að samkv. frv. væru veðskuldabrjefin bundin við hverja einstaka íbúð. Jeg hygg nú, að það sje rjett hjá hv. 2. þm. Reykv., sem drap á þetta atriði, að fordæmi sjeu fyrir þessu í öðrum löndum, en tilgangurinn með þessu er sá, að einstaklingarnir geti fengið keyptar þessar íbúðir. Þessi ákvæði frv. eru því til að stuðla að sjálfsábúð. (SE: Þessa eru engin dæmi hvorki í Noregi nje Danmörku). Jeg skal ekki fullyrða neitt í því efni. en þótt þetta tíðkist hvergi annarsstaðar, tel jeg gott að fá það hjer, til þess að stuðla að sjálfsábúð. En það er sjálfsagt að athuga þetta nánar.

Hv. 2. þm. G.-K. vill vísa þessu máli til stj., og hv. þm. Dal. tók í sama streng. Jeg skal ekkert um það segja, hvort þetta frv. nær fram að ganga, en jeg vil óska þess sem atvmrh., að stj. fái að sjá svip af vilja þingsins í þessu máli. Jeg vil ekki láta vísa þessu máli til stj. nú, heldur að fari fram atkvgr. um frv., svo að stj. sjái, hvað hún hefir á bak við sig í þessu máli, ef því yrði síðar til hennar vísað.