04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3381 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)
37. mál, verkamannabústaðir
Jón Ólafsson:
Það liggur við, að jeg sjái eftir þeim tíma, sem fer í að ræða þetta mál. Mjer finst alt benda á, að frv. eigi ekki að ná fram á þessu þingi. Frv. fór í n. hinn 27. febr. En nál. meiri hl., þess hl., sem sjálfur flm. frv. á sæti í, er ekki dagsett fyr en 30. apríl!
Þetta bendir á, að frv. sje ekki borið fram í alvöru, heldur sje hjer um nauðungarverk að ræða og því sje verið að leika þennan skrípaleik. Og loks er meiri hl. hefir skilað áliti sínu, þá víkur hann ekkert frá brtt., er hæstv. atvmrh. hefir borið fram. Vegna þessa alvöruleysis hefi jeg ekki trú á, að málinu sje ætlað að ná framgangi á þessu þingi.
Mál þetta er stórmál og er því margt í sambandi við það, sem þarf rækilegrar athugunar, og þetta er miklu stærra viðfangsefni en menn gera sjer í fljótu bragði grein fyrir. Þörfin er óneitanlega nokkur, en þó eigi eins aðkallandi og þörfin fyrir byggingar- og landnámssjóð, þann, er stofnaður var á síðasta þingi. Hvað sem segja má um íbúðar hjer í Reykjavík, — og þá einkum kjallaraíbúðirnar, sem þeir og gera sjer mestan matinn úr, sem hafa það fyrir markmið að flaðra upp um alþýðuna —, þá er þó fjöldinn af híbýlum sveitanna svo miklu lakari, að ekki er saman berandi. Jeg vil endurtaka það, að þetta er gott mál og þarft, sem sjálfsagt er að líta á með sanngirni og velvilja. En það er líka margt annað, sem er mjög aðkallandi um framkvæmdir þjóðfjelagsins, og er þá ætíð spurningin, hverju eigi fyrst að sinna.
Í 1. gr., eins og hún verður eftir brtt. hæstv. atvmrh., er ákveðið, að fje úr byggingarsjóði skuli lána til að reisa íbúðir handa verkafólki, „almennum verkamönnum og sjómönnum og starfsmönnum ríkis og bæjarfjelaga“. Að mínu áliti er margt annað fólk, sem ekki hefir síður þörf fyrir slíka hjálp. Verslunarmenn eiga ekki að fá aðgang að þessari fyrirgreiðslu. Þó held jeg, að margt verslunarfólk og fólk, sem starfar yfirleitt að viðskiftalífinu, hafi minni tekjur en verkamenn, að jeg ekki tali um sjómenn. Það mun vera sárafátt af slíku fólki, sem hefir 5.000 kr. í árstekjur. Og jeg get ekki sjeð, að það sje sanngjarnt, að bæjarfjelagið geri svo upp á milli borgara sinna, að ljá þessu fólki ekki slíkt lið sem öðru. Þetta bendir til þess, að hjer sje sjerstaklega um að ræða alþýðudekur. Það á að láta líta svo út, sem eitthvað sje verið að gera fyrir alþýðuna, þótt engin festa fylgi atgerðunum.
Þá á að færa þetta í þann búning, að samvinnufjelög komi upp byggingunum. Jeg veit ekki, á hvaða grundvelli fjelagsskapar Byggingarfjelag Reykjavíkur var reist. Það er að vísu ekki samvinnugrundvöllur, en þó er það þannig, að þeir eiga rjett á íbúðunum. sem lagt hafa fram fjeð. Eftir því sem jeg þekki til þess fjelags, þá verður ekki annað sagt en að sá fjelagsskapur hafi tekist illa. Að vísu verður að kannast við það, að ógæta fjelagsskaparins var, að hann reisti byggingar sínar á svo óheppilegum tíma. En þó væri það ekki í því öngþveiti, sem það nú er í, ef því hefði verið betur stjórnað. Slík fyrirmynd fjarlægir mig nokkuð frá þessu frv. Það verður a. m. k. að koma skýrt fram í frv., að því aðeins verði ráðist í byggingu, að einhver hafi pantað hana og hann geti þá staðið straum af þeim 15% af andvirðinu, sem hann á að borga við móttöku. Það er langt frá því, að lánveitandinn sje tryggur með því að lána 85% út á húsin. Skal jeg í því sambandi minna á það hrun, er varð hjer 1908. Þá varð ekki gott að selja hús fyrir veðdeildarskuldum, og er það þó, eins og kunnugt er, æðimikið minna en 85%, sem veðdeildin lánar út á hús. Hjer ríkir stöðug hætta. Jeg legg þó ekki svo ýkjamikið upp úr þessari hættu, að jeg telji rjett að láta málið stranda þess vegna.
Jeg er hissa á, að hæstv. atvmrh. skuli gera það að till. sinni, að atvmrh. eigi að segja til um, hvort þörf sje þessara ráðstafana eða ekki. Jeg gæti hugsað, að það væri hollara fyrir hverja þá stj., sem við völd situr, að vera laus við það. Það hlýtur að verða hverri stj. vandræðamál. Jeg veit, að yfir hverri stj. ganga nógar klaganir og henni er fyrir nógu margt legið á hálsi, þó ekki bætist þetta tilfinningamál ofan á. Það gæti orðið ónotalegt fyrir ráðh. að neita slíkum kröfum. En þetta er þó ef til vill ekki mikið atriði, og úr því að jeg sje, að hæstv. ráðh. vill taka þetta upp á sig, þá skal jeg ekki Standa í vegi fyrir, að brtt. verði samþ.
Jeg sje ekki ástæðu til að fara nákvæmlega út í einstök atriði frv. Þar er óendanlega margt, sem þarf að laga. Og jeg fyrir mitt leyti finn hjer ekki áhuga fyrir öðru en að tala um það.
En jeg get tekið undir það með öðrum, sem talað hafa um það, sem að húsabyggingum snýr, að jeg er sannfærður um, að ef svo víðtækar vonir og jafnvel kröfur verða vaktar, kröfur, sem engin tök eru á að uppfylla, þá muni margir bíða og bíða lengi eftir því að fá þessi kjör, sem hjer um ræðir. Jeg held því, að þetta verði til að draga úr byggingum í svip og verki því öfugt við það, sem því er ætlað. Eina ráðið til að lækka húsaleiguna er, að stj. beiti sjer fyrir því, að hagkvæm lán fáist til bygginga, að menn geti með góðu móti fengið alt það að láni, sem þeir geta ekki lagt fram sjálfir. Jeg veit til, að menn hafa klofið byggingarkostnað, þrátt fyrir ótrúlega lítil efni, ef þeir aðeins hafa átt kost á láni til langs tíma og þótt vaxtakjör væru ekki sem best.
Jeg mun fylgja þeirri hugmynd, sem í frv. felst, ef henni verður komið í skynsamlegan búning, og mun jeg því greiða frv. atkv. til 3. umr., hvað sem jeg svo geri. En jeg vænti þess, að n. ásamt hv. flm. geri eitthvað til að lagfæra það í þeim atriðum. sem jeg hefi nefnt, og taki þannig á sig rögg eftir tveggja mánaða hvíld.