04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3400 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)

37. mál, verkamannabústaðir

Jón Ólafsson:

Jeg verð að kannast við, að jeg gleymdi áðan að tala um eitt atriði, sem mjer þykir allmiklu skifta, og það er, að hvorki eftir frv. nje brtt. hœstv. forsrh. hefir aðallánveitandi trygt sjer nauðsynlegt eftirlit með þeim, sem eiga að fá 85% lánað út á hús sín, um það, að gætt sje bygginda og hagkvæmni í byggingu húsanna, en það er vitanlega alveg nauðsynlegt. Jeg vil benda á, að reynsla af samvinnufjelögum um byggingar hjer í bœnum er ekki svo góð, að hún gefi góðar vonir, og því held jeg, að fylsta ástæða væri til að hafa eftirlit með því, að byggingarkostnaður hlypi ekki fram úr öllu vegna klaufaskaps þeirra, sem hlut eiga að máli, því að hjer ríður auðvitað á því, að ráðdeildarlega sje með fjeð farið.

Hv. þm. Ísaf. þóttist ekki hafa heyrt, hvort jeg væri með eða á móti málinu. Jeg hefi þegar lýst yfir því, að jeg er með því á framkvæmanlegum grundvelli. En eins og stendur vinst ekki tími til að laga þœr miklu misfellur, sem á frv. eru, og litlar líkur til, að það nái fram að ganga á þessu þingi, og eins og frv. er nú, eru engar líkur til, að jeg geti fylgt því nema til 8. umr.

Hv. þm. Ísaf. var að tala um, að jeg væri að dingla rófunni utan í þetta mál. Jeg veit ekki, hvað hann á við með því, en mjer hefir ekki virst vanþörf á þeim aths., sem komið hafa fram við það. Þetta mál virðist hjer borið fram af hv. jafnaðarmönnum til þess eins að sýnast, en ekki til þess, að árangur verði af. Hefði svo verið, hefðu þeir vandað betur til undirbúnings málsins.