04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3406 í B-deild Alþingistíðinda. (2119)

37. mál, verkamannabústaðir

Ólafur Thors:

Jeg vil benda hv. þm. Mýr. á, að það er þarflaust að deila um, hvort brtt. hafi verið hjer til umr. í dag. Það er öllum hv. þdm. ljóst, að svo hefir verið. Um hitt er deilt, hvort heimilt sje að taka þær upp og krefjast atkv. um þœr á þessum fundi, með þeim rökum, að úr því þær eru tilgreindar á dagskránni, gildi einu, þótt flm. hafi tekið þær aftur á síðasta fundi.