04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3408 í B-deild Alþingistíðinda. (2126)

37. mál, verkamannabústaðir

Forseti (BSv):

Hjer verða ekki kveðnir upp tveir úrskurðir, hvor ofan í annan. Það er skýlaust, að brtt., sem tekin er aftur, verður að taka upp á sama fundi, ef duga skal. En jeg hefi boðið til samkomulags að leita afbrigða frá þingsköpum um það, að þessar brtt. megi verða bornar undir atkv. nú.