04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3409 í B-deild Alþingistíðinda. (2127)
37. mál, verkamannabústaðir
Sigurður Eggerz:
Mjer skildist, að það hefði ekki verið sannað í umr., að þessar till. hefðu verið teknar aftur á síðasta fundi. En nú hefir verið upplýst, að ekkert sje um það bókað; þá skilst mjer, að eitthvað sje bogið við úrskurðinn, þar sem hann er bygður á þessu. En hann er nú upp kveðinn, og við því verður ekkert gert. (Forsrh.: Það er sannað, að till voru teknar aftur).