10.05.1929
Neðri deild: 65. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3442 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)

37. mál, verkamannabústaðir

Bjarni Ásgeirssson:

Mig langar til áður en gengið verður til atkv. um frv. að gera grein fyrir því, hvers vegna jeg, sem er fulltrúi sveitakjördæmis, fylgi frv. þessu.

Aðallega eru það tvær ástæður, sem bornar hafa verið fram gegn frv. Í fyrsta lagi hefir það verið látið klingja, að frv. mundi ekki koma að neinu liði. Það, sem því væri ætlað að vinna, væri hjegómi og kák eitt, en sennilegt þó, yrði það að lögum, að minna yrði bygt í bænum en ella. Í öðru lagi hefir því verið haldið fast fram. og nú síðast af hv. 1. þm. S.-M., að þau fríðindi og vildarkjör, sem frv. hefir að bjóða, mundu valda aðstreymi til bæjanna, m. ö. o. lokka fólkið burt úr sveitunum.

Jeg sje nú ekki betur en að þessar tvær ástæður stangist innbyrðis, þegar þær eru nánar athugaðar og krufðar til mergjar. Ef ekki verður nema um kák eitt að ræða að því er það snertir að byggja upp kaupstaðina. þá er ósennilegt, að það freisti manna svo mjög að flykkjast til bæjanna, að sveitirnar tæmist þess vegna. Jeg hygg nú, að báðar þessar mótbárur sjeu á nokkrum misskilningi bygðar og fram komnar fremur af löngun til að finna mótbáru í málinu og gera það óvinsælt bæði til sjávar og sveita heldur en af einlægni í að leita að hinu rjetta.

Jeg geri ráð fyrir, að það sje á misskilningi bygt, að frv. komi til með að draga úr byggingum t. d. hjer í Reykjavík, nema ef til vill að því leyti, að einstakir efnamenn telji sjer það ekki jafnmikla fjeþúfu og áður að byggja hús til þess eins að selja þau öðrum á leigu fyrir okurverð.

En hitt er mest um vert, að frv. veitir mönnum kost þess að eignast hús og þak yfir höfuðið, enda mun það sýna sig í framtíðinni, að það hefir betri og hollari áhrif, að einstaklingarnir geti átt hús sín sjálfir í stað þess að leigja þau af öðrum.

Þá mun það ekki síður vera á misskilningi bygt, að frv. verði til þess að draga fólkið úr sveitunum til kaupstaðanna. Þar eru önnur öfl að starfi, sem ekkert láta sig varða auknar byggingar kaupstaðanna. — Það er af tveim höfuðástæðum, sem menn leita á burt úr sveitunum. Nokkur hluti fólksins leitar út í kaupstaðalífið af því hann þráir glaum og æfintýr, eða auðæfi, sem það hygst munu fremur finna í bæjunum en sveitunum. Það fólk er ekki að spyrja um það, hvort til sjeu byggingarsjóðir, sem geri því auðvelt að koma upp skýli yfir sig. Reynslan hefir sýnt, að fólkið flykkist út í óvissuna með það eitt fyrir augum að komast til kaupstaðanna.

Annar flokkur manna fer úr sveitunum af öðrum ástæðum, og í honum er yfirleitt mest eftirsjá. Það eru ungir menn, sem verða að leita á braut sökum þess, að þeir hafa enga möguleika til að reisa þar býli, sem þeir gætu átt sjálfir eða framfleytt á fjölskyldu. Eini möguleikinn til að fá þessa menn til að una í sveitunum er að auka lífsmöguleikana fyrir þá og stuðla að aukinni ræktun landsins og fjölgun býla, enda er jeg ekki í vafa um, að þegar möguleikar skapast í sveitunum að búa um sig og lifa þar, hætta þeir að leita á braut, þótt sjóðir sjeu í kaupstöðum, sem styrkja menn til að reisa eigin hús. Þetta, ræktun og efling sveitanna, sem nú er hafin fyrir alvöru, það er hin rjetta leið til að bæta úr þessum vandræðum, en hitt væri hin argasta hrossalækning, ef menn hugsuðu til að bæta hag sveitanna með því að draga bæina niður.

Jeg er að sumu leyti samdóma hv. 1. þm. S.-M., að sveitirnar munu blómgast, ef þeim er fullur sómi sýndur, en ef ekkert er að gert, getum við ekki við því gert, þótt fólk flytji til kaupstaðanna, og þeim straum verður ekki bægt til baka og við verðum að gera ráð fyrir, að kaupstaðirnir haldi áfram að vaxa, jafnvel þótt flutningur þangað hætti að mestu úr sveitunum. Nú mun um helmingur landsmanna búa í bæjunum, en mikill hluti þessa fólks getur ekki reist sjer hús, þannig, að sómasamlegt megi heita. Af öllu því, sem hættulegt er fyrir ungt fólk, er það hættulegast að eiga ekkert heimili, sem það ann og getur dvalið í, en verður að flýja út á götuna eða á knæpur, og verður svo að heimilislausum, ættjarðarlausum og ábyrgðarlausum skríl. Úr slíku verður að bæta, og það verður að hjálpa fólkinu til að eignast heimili, sem skapar hjá því þær dygðir, sem prýða góða borgara. Jeg vil undirstrika það, að aðalatriðið er að rækta og byggja landið, svo að það geti framfleytt fólkinu og að það geti unað í sveitunum, en í kaupstöðunum verður jafnframt að gera það fólk, sem þangað er flutt, að andlega heilbrigðum mönnum, en ekki láta þá óhollustu, sem borgalífið spýr frá sjer, gera það að vanskapningum. Meðal erlendra menningarþjóða ryður sú hreyfing sjer meir og meir til rúms, að löggjöfin eigi ekki að láta afskiftalaust, hvernig híbýlum þjóðarinnar er háttað. Og menn hallast víða að því, að borgir eigi að byggja þannig, að hver fjölskylda geti haft gróðurreit til eigin afnota við hús sín, enda eru ýmsir ágætir hugsjónamenn, sem hafa varið auðæfum sínum til að byggja upp slíka fyrirmynd borga. Hjer á landi t. d. hafa menn náð lengst í þessa átt á Akranesi, því að þar hefir hver maður grænan blett í kringum hús sín, og þannig á það að vera. Jeg álít, að þetta litla spor, sem tekið er í þessu frv. í þá átt, verði að stíga, og að löggjafinn verði að láta til sín taka í þessum efnum, til þess að vernda borgarana frá þeirri andlegu og líkamlegu eyðileggingu, sem vond húsakynni hafa í för með sjer, og ef hann gerir það, þá stuðlar hann að því, að landið eignast góða og duglega borgara bæði til sjávar og sveita, en ekki úrkynjaðan skríl.