10.05.1929
Neðri deild: 65. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3453 í B-deild Alþingistíðinda. (2156)
37. mál, verkamannabústaðir
Magnús Guðmundsson:
Háttv. þm. Mýr. mælti með frv. og var að tala um, hvers vegna fólk sækti úr sveitum landsins til kaupstaðanna. Um það þarf ekki að deila. Þrátt fyrir mótbárur hv. þm. er það víst, að þetta verður til þess að draga fólk úr sveitunum til kaupstaðanna. Jeg er ekkl í neinum vafa um, að margir gera sjer tálvonir um lán úr byggingar- og landnámssjóði. Það er ekki unt að fullnægja nema brothluta af umsóknum, sem fram hafa komið. Hv. þm. var að tala um, að það þyrfti að byggja yfir knæpuskrílinn í Reykjavík. Jeg þekki hann nú ekki og held, að ekki sje um hann að ræða hjer. Slíkt á við um stórborgir erlendis, en ekki um Reykjavík.
Þá talaði hv. þm. um, að stærsta málið og það málið, sem mesta áherslu bæri að leggja á, væri ræktun og lýsing sveitanna. Jeg er honum alveg sammála um það. En frá því má ekki hverfa fyr en því er lokið. Það mál er alls ekki leyst enn. Aðeins hafa verið lögð nokkur drög að umbótum í því efni. Það má vera, að síðar komi til þess, að rjett þyki, að hið opinbera hjálpi til að byggja upp bæina, en til þess er enn ekki kominn tími. Sveitirnar eiga að ganga fyrir.
Hv. þm. Ísaf. þarf jeg ekki að svara miklu. Hann fjelst á, að fyrst ætti að hjálpa þeim, sem væru minni máttar. Áhrifin af stuðningi þess opinbera við sveitirnar eru ekki enn farin að sýna sig. Hagnaðurinn af ræktun kemur ekki svo fljótt, að hann hafi nú þegar áhrif í þá átt að halda fólki í sveitunum. Um sveita- og bæjabörn ætla jeg ekki að karpa meira við hv. þm.
Jeg er á sama máli og hv. 1. þm. S.-M. um tilgang byggingar- og landnámssjóðs, og ef nú á að gera það sama fyrir kaupstaðina, þá verður árangurinn enginn að því er sveitirnar snertir. (HG: Sagði ekki háttv. þm., að búið væri að sækja um meira úr byggingar- og landnámssjóði en hægt væri að veita í ár?). Jú, meira en hægt er að veita á þessu ári. En á síðastl. ári hefir verið bygt hjer í Reykjavík fyrir eins mikið fje eins og áætlað er eftir lögunum um byggingar- og landnámssjóð, að varið verði til bygginga j sveitum landsins.
Jeg hefi borið fram þá till., að þessu máli verði vísað til hæstv. stj. (HV: Var ekki búið að fella hana við 2. umr.?). Jú, en jeg held, að þingsköp banni ekki, að slík till. komi til atkv. nú eigi að síður. Annars sker hæstv. forseti úr því.