07.03.1929
Efri deild: 16. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3487 í B-deild Alþingistíðinda. (2202)

Fjármálaráðherraembættið

fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil leyfa mjer að tilkynna hv. deild, að samkv. símskeyti frá konungsritara hefir hans hátign konungurinn fallist á tillögu mína um skipun fjármálaráðherra og skipað Einar Árnason, 1. þm. Eyf., fjármálaráðherra í núverandi ráðuneyti.