18.04.1929
Neðri deild: 48. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3490 í B-deild Alþingistíðinda. (2208)
Umræður utan dagskrár
Forseti (BSv):
Út af þessum tilmælum hv. þm. Barð., um að taka á dagskrá frv. til laga um dóm í vinnudeilum, vil jeg taka það fram, að jeg hefi nokkrum sinnum komið að máli við form. allshn, og beðið hann að hraða áliti meiri hl., og hefir hann jafnan lofað góðu um, að það myndi koma bráðlega, en nú virðist hann vera farinn að tregðast. Sömuleiðis hefi jeg hvatt aðra meðnm. hans úr meiri hl. að hraða áliti eða álitum sínum. Mun jeg því taka málið á dagskrá áður en langt um líður.