15.03.1929
Neðri deild: 23. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í C-deild Alþingistíðinda. (2275)
46. mál, fyrning skulda
Frsm. (Gunnar Sigurðsson):
Það má segja um hv. flm., að hverjum þykir sinn fugl fagur. Við getum deilt um þetta fram og aftur í mesta bróðerni, en jeg er hræddur um, að árangurinn verði lítill. — Jeg get ekki fallist á, að ekki sje nokkur sönnun fólgin í því, að nefndin hefir öll orðið sammála um að leggja á móti þessu frv. En hitt var rjett, að í ræðu minni tók jeg ekki annað fram en það, sem drepið var á í nál. Þegar jeg sem nál., þá reyni jeg altaf að grípa á höfuðpunktunum, stikla á aðalatriðunum. Þó var það eitt, sem jeg tók fram í ræðu minni og ekki var minst á í nál. Þessi breyting verður aðallega vatn á myllu lögfræðinganna, að minsta kosti fyrst í stað, meðan einhver þorir að lána. Og þessu mótmælti hv. flm. ekki.
Mjer fanst hv. flm. ekki vilja skilja, að það er stórt atriði, að ríkið verndi traust manna á milli í viðskiftum. Þó jeg viðurkenni, að millilandaviðskifti fari tíðast fram með víxlum, þá á hitt sjer og stað, að menn, sem bera fult traust hvor til annars, láti úti vörur gegn engum sjerstökum skilríkjum. Einkum á þetta sjer stað þar sem viðskiftin eru orðin gömul. En aðaláhersluna lagði jeg á það, að þótt erlendar þjóðir ekki nema frjetti, að við höfum stytt fyrningarfrestinn niður í 1 ár og látum framhaldsviðskifti ekki slíta fyrningu, þá dregur það eitt úr lánstrausti landsmanna erlendis.
Hv. flm. gerði mikið úr hinni bættu bankastarfsemi, sem yrði þegar sveitabankarnir og fasteignabankinn kæmust á. Jeg vona að vísu, að að þeim verði mikil not, en er samt ekki svo vongóður að halda, að almenningi veiti af lánstrausti sínu hjá kaupmönnum og kaupfjelögum eftir sem áður, og þá sjerstaklega þeim, er helst þurfa á lánum að halda, efnalausu mönnunum. Jeg veit, að hv. flm. er svo kunnugur viðskiftamálum, að hann þekkir, að menn geta verið borgunarmenn fyrir skuld, þótt þeir geti ekki goldið hana á einu ári. En ef kaupmenn og kaupfjelög eiga von á, að viðskiftaskuldir fyrnist á 1 ári, þá lána þeir ekki öðrum en þeim, sem þeir eru vissir um, að muni borga á því sama ári.
Þá held jeg, að hv. flm. misskilji frv., er hann heldur því fram, að það breyti ekki þeirri reglu fyrningarlaganna, að viðurkenning skuldunauts slíti fyrningarfrestinum. Það gerir frv. með því að fella niður 6. gr. fyrningarlaganna. Skal jeg lesa upp upphaf hennar, með leyfi hæstv. forseta. Þar stendur svo: „Nú viðurkennir skuldunautur skuld sína við kröfueiganda, annaðhvort með berum orðum eða á annan hátt, — t. d. með því að lofa borgun eða greiða vexti, — eftir þann tíma, er fyrningarfrest ella hefði átt að telja frá, og hefst þá nýr fyrningarfrestur frá þeim degi, er viðurkenningin átti sjer stað, eða frá þeim degi, er skuldin þar á eftir varð gjaldkræf, eða hefði getað orðið gjaldkræf með uppsögn frá kröfueiganda“. — Þessi gr. leggur hv. flm. til, að feld verði niður, og er þar breyting á því „principi“ fyrningarlaganna, að viðurkenning á skuld slíti fyrningu hennar. Mundi þetta leiða til slíkrar röskunar á núgildandi viðskiftalífi, að n. getur ekki gengið inn á það. Og að segja, að um þetta atriði gildi hið sama samkvæmt frv. og lögunum, það er rangt.