11.03.1929
Neðri deild: 19. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í C-deild Alþingistíðinda. (2299)

38. mál, tekju- og eignarskattur

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Þótt jeg gegni ekki lengur störfum fjármálaráðherra, finst mjer rjett að svara hv. 2. þm. Reykv. (HV). Jeg var riðinn við úrskurð um það, hversu skilja skyldi ákvæði laganna um tekjur þær, er undanþegnar skyldu 25% viðaukanum. Hv. frsm. meiri hl. (HJ) heldur því fram, að þar hafi verið átt við skattskyldar tekjur, og skal jeg játa, að stjórnin hafði nokkra tilhneigingu til að skilja lögin þannig. En þingtíðindin, ummæli flm. og frsm. sjerstaklega, taka af öll tvímæli um þetta. Þar er gerður greinilegur munur á skatttekjum og árstekjum í þessu sambandi og fullkomlega ljóst, að talið er að í lögunum sje átt við árstekjur. Viðaukinn verður ekki heimtur inn að þessu sinni og kemur þetta því ekki að sök nú, og þingið getur lagað þetta áður en hann kemur til innheimtu næst.

Hv. frsm. minni hl. (HV) spurði, hvort rjett væri, að „hæstv. forsrh.“ hefði gefið skipun uni að nota ekki heimildina. Þetta er að vísu ekki formlega rjett, því að það var jeg sem fjármálaráðherra þá, sem gaf þá skipun. Hv. þm. þótti undarlegt, að jeg hefði gefið skipun um að innheimta skattaukann í janúar, en afturkallað þá skipun í febrúarlok. Jeg get þegar skýrt orsakir nokkrar til þessa. Það kom fram snemma í febrúar, er gerður var upp hagur ríkissjóðs, að l1/2, milj. króna var í sjóði frá fyrra ári. Hinsvegar var ríkisstjórninni ekki fullkomlega ljóst í janúar, hver útkoman myndi verða. Hefðu þá runnið tvær grímur á flestar stjórnir um að beita þessum lögum, sem aðeins voru heimildarlög. Hv. þm. spurði ennfremur um samband þessarar ráðstöfunar við afskifti mín af kaupdeilunni. Því svara jeg þannig, að jeg álít það skyldu mína sem sáttasemjari í þeirri deilu, að skoða það sem fór á milli mín og aðilja sem fult trúnaðarmál.