11.03.1929
Neðri deild: 19. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í C-deild Alþingistíðinda. (2312)
38. mál, tekju- og eignarskattur
Haraldur Guðmundsson:
Hjer í deildinni er nú verið að ræða um tvö mál samtímis. Eru þau náskyld að vísu, en mjög misstór þó. Annað er smávægilegt, sem sje frv. það, sem hjer liggur fyrir, um að miða skattaukann við skattupphæð í stað árstekna. Mig furðar á því, að hv. frsm. skuli ekki betur kunna að gera greinarmun á brúttó- og nettótekjum, en ræða hans ber vott um. Jeg skil ekki í því, að nokkrum manni hafi dottið í hug, að 4000 króna tekjuupphæðina ætti að miða við brúttótekjur, þar eð það nær vitanlega engri átt. Við skulum t. d. gera ráð fyrir, að kaupmaður hafi 20 þús. kr. brúttótekjur á ári. Þá nær vitanlega engri átt að miða skattinn eða skattaukann við þá upphæð, heldur verður auðvitað að draga fyrst frá allan kostnað við öflun teknanna. Þegar búið er að draga frá þann kostnað, koma hinar raunverulegu tekjur gjaldandans í ljós. Hv. þm. hefði getað fengið sjer upplýsingar um þetta í tekjuskattslögunum og reglugerðinni. Þar hefði hann getað gengið úr skugga um, að skatturinn er aðeins lagður á tekjur að frádregnum kostnaðinum við öflun þeirra, og síðan persónufrádrætti hjá einstaklingum og varasjóðstillagi og hlutafjárvöxtum hjá fjelögum.
Hv. þm. N.-M. og hv. 2. þm. Árn. vitnuðu í orð mín hjer í hv. deild í fyrra, til sönnunar því, að með „árstekjum“ í lögunum frá í fyrra væri átt við brúttó-tekjur og skattaukinn miðast við þær. Þetta nær engri átt. — Jeg mun lesa — með leyfi hæstv. forseta, — kafla úr ræðu minni frá í fyrra, á bls. 3891 í Þingtíðindunum:
„Flestir þessara manna (þ. e. starfsmanna ríkisins) starfa fyrir laun, sem eru lægri en 4000 kr. á ári. T. d. eru það aðeins elstu prestar, sem hafa yfir 4000 kr. árslaun, en prestastéttin er fjölmennasta stjettin, að undanteknum barnakennurum. Símamenn, póstmenn og barnakennarar eru allir fyrir neðan þetta lágmark, 4 þús. kr. árstekjur, nema þá örfáir yfirmenn.“
Engir þessara manna koma til greina, þegar um aukaskattinn er að ræða, til þess verður að fara hærra upp. Embættislaunin eru frádráttarlaus, þ. e. það er enginn sjerstakur kostnaður við öflun þeirra.
Þessi till., ef að lögum yrði, mundi draga nokkuð úr tekjum ríkissjóðs, og verð jeg að segja, að það er alveg ný aðferð að bera fram frv. til breytinga á skattalögunum, án þess að taka til athugunar hvaða þýðingu það hefir fyrir ríkissjóð. En það gera flm. alls eigi. Hv. 2. þm. Árn. segir, að skattaukinn komi harðast niður á fjölskyldumönnum, og hv. 1. þm. Reykv. tók í sama strenginn, og að því er virtist vildu þessir hv. þm. telja, að lítið væri að marka ræður þm. í Þingtíðindunum, þær hefðu brjálast allmjög í meðferð skrifaranna. Jeg get af þessu tilefni lýst yfir því, að ræða mín var óbrjáluð frá hendi þingskrifaranna, en í prentuninni hefir ein lína fallið niður og röðin raskast.
Jeg vil nú lauslega sýna fram á, að skattaukinn frá í fyrra og lækkun kaffi- og sykurtollsins, sem þá var gerð, jafnar sig h. u. b. fyrir ríkissjóðinn, og að útkoman verður mjög svipuð fyrir fjölskyldumenn hér í Rvík. Vildi jeg í þessu sambandi lesa lítinn kafla úr ræðu minni frá í fyrra, ef hæstv. forseti leyfir það:
„Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að skattur af 4000 kr. árstekjum væri 72 kr. Sami hv. þm. taldi, að Reykvíkingar mundu neyta 1/3 af því kaffi og sykri, er til landsins flytst, eða borga 1/3 af kaffi- og sykurtollinum, en það verða þá 350 þús. kr. Jeg held nú að vísu, að þeir greiði meira en þetta af þeim tolli, en skal þó reikna með þessari upphæð. — 20% lækkun á kaffi- og sykurtollinum nemur því fyrir Reykjavík kr. 70000.00. Álagning kaupmanna á þá upphæð nemur minst kr. 15000.00, eða samtals kr. 85000.00. Sje gert ráð fyrir því, að hjer í Reykjavík sjeu 4000 heimili, þá kemur á hvert heimili kr. 21.00 lækkun. Nú er skattur, samkvæmt framansögðu, af 4000 kr. 72 kr.; 25% hækkun á þá upphæð verður 18 kr., eða með öðrum orðum, 3 kr. minna en lækkun kaffi- og sykurtollsins. Ef gert er ráð fyrir 5 manna fjölskyldu með 6500 kr. tekjum og 2000 kr. í frádrátt, þá verða eftir 4500 kr. og þá stendur þetta (þ. e. lækkun tolla og hækkun tekjuskatts) í járnum. Fjölskyldumenn, sem hafa undir 5000 króna skattskyldutekjur, tapa því engu við þetta. Það er þá fyrst, þegar tekjurnar fara að verða háar, og ekki minni en 8–10 þús. kr., sem útgjöldin aukast verulega vegna þessara breytinga, og svo vitanlega á einhleypum mönnum.“ Um þetta þarf ekki að deila, þar eð það liggur í augum uppi, að tilgangur laganna frá í fyrra var sá, að skatturinn skyldi miðaður við árstekjur manna, en hitt nær engri átt, að lögin hafi átt við brúttó- tekjur, eins og áður hefir sagt verið, þar eð það getur í ýmsum tilfellum farið svo, að um beint tap sje að ræða, þótt brúttó-tekjur sjeu langt yfir 4000 krónum.
Í lögunum frá í fyrra er með „árstekjum“ auðvitað átt við brúttó-tekjur að frádregnum kostnaði við öflun þeirra. Það er alveg rjett og samkvæmt málvenju. Þegar svo skatturinn er á lagður, er persónufrádrátturinn dreginn frá; með því er gerður munur einstaklinga og fjölskyldumanna. Nú væri máske rjett að sýna fram á, að þessi skattauki er ekki svo tilfinnanlegur. Tökum t. d. heimili, sem hefir 4000 kr. árstekjur, en 5–6 í heimili. Þar nemur skattaukinn aðeins nokkrum aurum. Gerum ennfremur ráð fyrir, að annað heimili hafi 7 einstaklinga til framfærslu, en 5000 kr. tekjur. Þá verður munurinn einnig svo lágur, að engan munar um að greiða hann.
Menn verða að gera sjer grein fyrir, hvert stefnir. Er það rjettara að íþyngja fátæklingunum með tollum á nauðsynjavöru, heldur en að lækka tollana og láta þá borga skattana, sem eiga eignir eða hafa tekjur til að borga skatta af?
Einhver vitlausustu orð, sem jeg hefi heyrt hjer í deildinni, voru þau, er hv. 2. þm. G.-K. ljet sjer um munn fara, er hann sagði, að tekjuskatturinn væri einhver ranglátasti skattur, sem til væri. (ÓTh: Það hefi jeg aldrei sagt; jeg talaði um skatt-skalann). Jeg veit ekki betur, en að skatt-skalinn sje hjer svipaður og í nærliggjandi löndum. En hvað finst hv. þm. (ÓTh) um tolla-skalann okkar, tollana á fatnaði og nauðsynjavörum. (ÓTh: Jeg man ekki betur, en að hv. þm. greiddi atkv. sitt með hækkun þessara tolla í fyrra). Það er satt að vísu, að jeg greiddi atkvæði með því að hækka verðtollinn úr 10% og 20%, upp í 15% og 30%, og mun rjett að skýra afstöðu mína til þess máls. Jeg vil lýsa því yfir um leið, að jeg hefi orðið fyrir miklum vonbrigðum í sambandi við þau mál. Það var tvímælalaust vilji þingsins í fyrra, að þessi heimild til að innheimta skattaukann, yrði notuð í ár. Sjest það á því, að samtímis var samþ. lækkun á tollum á nokkrum þurftarvörum almennings, svo sem kaffi og sykri, er nam jafnri upphæð, 200–250 þús. kr. Jafnaðarmenn ljetu tilleiðast að hækka verðtollinn, en það var til skilið, af þeirra hálfu, að móti kæmi lækkun kaffi- og sykurtolls og jafnframt hækkun á sköttum eigna- og hátekjumanna, þ. e. að hækkaður væri tekju- og eignarskattur.
Þetta samkomulag hefir nú hæstv. stjórn rofið, með því að ákveða að innheimta ekki skattaukann.
Þetta tiltæki stjórnarinnar er aðalatriði þessa máls. Stjórnin hefir hjer breytt gagnstætt þingviljanum í fyrra. Hún hefir rofið gerða samninga. Jeg mun því bera fram frv. um að ljetta af verðtolli af ýmsum nauðsynlegustu vörum nú þegar. Sjest þá, hvort stjórninni og flokki hennar er alveg snúinn hugur frá í fyrra, hvort hún nú telur rjettara að skattleggja nauðsynjar alls almennings en arð og eignir þeirra, sem nú skamta sjer spæni úr öskum þjóðarinnar.