11.03.1929
Neðri deild: 19. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (2319)

38. mál, tekju- og eignarskattur

Frsm. minni hl. (Hjeðinn Valdimarsson):

Hv. þm. V.-Húnv. (HJ) hefir ekki enn getað skýrt, hvað hann hafði fyrir sjer, þegar hann bar fram kjaftasögu sína. Hann færði engin rök fyrir henni. Hitt veit jeg, að þegar jeg var fyrir norðan, voru þar engin verkföll eða verkalýður. En hv. þm. veit kannske betur, þó að hann væri þá austur í Vatnsdal. Jeg vil endurtaka það, að mjer finst menn eins og hv. þm. V.-Húnv. eiga lítið erindi á þing, þegar þeir hlaupa með slíkar sögur. En afskifti hans af verkfallsmálum eru alræmd, og er það vel, að samviskan hefir stungið hann.