14.03.1929
Neðri deild: 22. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í C-deild Alþingistíðinda. (2325)

38. mál, tekju- og eignarskattur

Ásgeir Ásgeirsson:

Jeg finn hjartanlega til með hv. 1. þm. Reykv. Og þó hafa þessi stóru hneyksli orðið til þess, að hann hefir fengið vilja sínum framgengt. Tekjuskatt átti að innheimta með viðauka. Það er fyrsta hneykslið. í öðru lagi er verkfallið hneyksli. Þriðja hneykslið er það, ef aflausn tekjuskattsaukans hefir átt þátt í að leysa verkfallið. Í fjórða lagi er það hneyksli, ef sveitamenn þurfa að borga hærra kaup o. s. frv.

Jeg verð að segja, að eina hneykslið í öllu þessu er það, að menn, sem eru ánægðir með það, sem hefir gerst, skuli vera að vefja þetta og klúðra af flokkástæðum og óhreinni hvötum en svarar til þeirra orðbragðs.

Það, sem hefir átt sjer stað er, að tekjuskattur er gefinn eftir, og í öðru lagi er verkfallsmálið leyst. Og þó að annað málið kynni að hafa áhrif á að leysa vandræði út af hinu, þá minkar hvorugt happið við slíkt. Rjett er að geta þess, að þessi lausn á verkfallsmálinu hefir á 10 dögum fært ríkissjóði jafnmikið fje og ákveðið er að innheimta ekki. Þarna er uppbótin komin. Og auk þess sem ríkissjóður fær sína peninga á þann hátt, þá hafa útgerðarmenn sína gróðamöguleika og verkamenn sitt kaup og lifrarpeninga. Það græða allir.

En þetta er eins og vant er. Þegar búið er að rífast lengi um þessi vandræði og hnefarjett og sleggudóma, — rífast hástöfum, eins og heimurinn ætti að forganga, þá er undir eins, þegar vandræðunum ljettir af, farið að spyrja: Út af hverjum ósköpunum eigum við nú að vera óánægðir? Þá kemur þetta: Það vekur nýtt hneyksli, að gömlu hneykslin hurfu úr sögunni. Nei, það eina hneyksli, sem hjer er á ferð, er það, að menn eins og 1. þm. Reykv. skuli reyna að gera að pólitísku hneyksli þá hluti, sem þeir í sjálfu sjer mega vera harðánægðir með.