03.04.1929
Efri deild: 35. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (2352)
38. mál, tekju- og eignarskattur
Jón Baldvinsson:
Jeg hefi ekki gert neitt nál., af því að jeg álít þess ekki þörf. En jeg vildi bara segja, að ef á að lækka gjöld landsmanna til ríkissjóðs, þá hefði átt að byrja á einhverjum öðrum gjaldendum en þessum.
Tekjuskatturinn kemur niður á mönnum eftir efnum og ástæðum, en ekki eins og flest önnur gjöld og tollar til ríkissjóðs, sem teljast mega nefskattar. Þess vegna á að byrja á að lækka tollana, en ekki þennan skatt. Jeg hefi svo ekki annað um þetta að segja. En jeg vil mjög fastlega víkja því til stjórnarinnar, án þess að fara nokkuð út í ráðstafanir hennar nú á tekjuskattsviðaukanum, er sett hefir verið í samband við togaraverkfallið, að hún innheimti skattsviðaukann á næsta ári; því jeg geri ráð fyrir, að hitin 1930 þurfi á því að halda og meira til.