03.04.1929
Efri deild: 35. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (2353)

38. mál, tekju- og eignarskattur

Jón Jónsson:

* Mjer kemur það mjög undarlega fyrir, að nokkur skuli mæla á móti þessu frv. Það er einkennilegt að álíta það rjettlátt, ef á annað borð á að framkvæma lögin, að tekjuskattsviðaukinn skuli frekar eiga að koma niður á mönnum, sem ekki hafa nema 2–300 kr. hreinar, skattskyldar tekjur, heldur en á þeim, sem hafa alt að 4000 kr. skattskyldar tekjur. Þá verður útkoman sú, að þeir sem í raun og veru hafa lægri tekjur, verða fyrir tekjuskattsviðaukanum fremur en þeir, sem eru miklu tekjuhærri, eins og greinilega kemur í ljós eftir þeim skilningi, sem stjórnin hefir lagt í lögin frá síðasta þingi um tekjuskattsviðaukann.

Hv. 4. landsk. talaði um, að aðalmarkmið þessa frv. væri að hækka tekjuskattinn, en það er hinn mesti misskilningur, því að tilgangur frv. er aðeins sá, að koma á meira samræmi milli skattgreiðenda og fyllri sanngirni við framkvæmd laganna. — Jeg fyrir mitt leyti tel tekju- og eignaskattinn sanngjarnasta skattinn, sem við greiðum, ef skattaframtal gjaldenda og skýrslur skattanefnda eru sanngjarnlega gerðar. Jeg hefði því gjarnan viljað hækka skattinn yfirleitt. Það er gamall og góður háttur í sveitum að jafna sveitargjöldum niður eftir efnum og ástæðum, og eftir sömu reglum væri réttlátast að haga gjöldum til ríkissjóðs.

Jeg skal ekki fara mikið inn á það, eftir hvaða reglum skatturinn ætti að fara hækkandi, eða hvort skattstiginn sje rjettlátur, að því er snertir hina hærri gjaldendur. Í minni sveit hefi jeg svo lítið kynst stórfeldum tekjum.

Jeg verð að segja það, að jeg skil ekki afstöðu hv. 3. landsk. gegn þessu frv., fyrst hann hefir ekki flutt till. um það, að lögin verði feld úr gildi. Jeg skil ekki hvers vegna hann getur ekki aðhylst frv., þar sem hann þó viðurkennir að það sje í raun og veru sanngjarnt. Það er tvímælalaust óréttlátt, að þeir menn, sem hafa 4000 kr. hreinar, skattskyldar tekjur, geti sloppið við skattsviðaukann, þegar hann er lagður á örlágar tekjur.

* Ræðuhandrit óyfirlesið.