03.04.1929
Efri deild: 35. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (2356)
38. mál, tekju- og eignarskattur
Páll Hermannsson:
Ef hjer á að hefja eldhúsdagsumræður í hv. deild í sambandi við þetta mál, þá hefði mjer fundist kurteislegra og jafnframt myndarlegra, að hlutast til um að einhver væri hjer viðstaddur úr stjórninni. (JBald: Stjórnin getur sjálf gætt þess, að vera til staðar). Annars ættu slíkar umræður sjerstaklega að koma fram á eldhúsdegi.
Jeg er sammála hv. 6. landsk. (JónJ) um, hvað er sanngjarnt í þessu máli, eins og hann gerði grein fyrir. Mjer finst, að það geti ekki komið til mála að fella frv. með það fyrir augum, að tekju- og eignaskatturinn sje órjettlátur. Því að þetta frv. leiðir þó til meira rjettlætis á tekjuskattslögunum, heldur en nú er gert ráð fyrir við framkvæmd þeirra. Hjer er heldur ekki um að ræða ívilnanir eða lækkun á gjöldum til ríkissjóðs, heldur leiðrjetting á misskilningi á lögunum frá 1928, um tekjuskattsviðaukann. Það hefir alls ekki getað vakað fyrir þinginu, eða verið vilji þess, að lögin væru skilin á þann hátt, sem stjórnin hefir gert, vegna þess, að tilgangurinn var aðeins sá, að hækka ákveðinn hluta skattsins, en alls ekki að breyta grundvelli tekjuskattslaganna. Ef um grundvallarbreytingu hefði verið að ræða á útreikningi tekjuskattsins, þá koma til greina þrjár leiðir; í fyrsta lagi að reikna skattinn af brúttó-tekjum, í öðru lagi af nettó-tekjum, og í þriðja lagi af skattskyldum tekjum gjaldþegna, það er að skilja nettó-tekjum, að fráskildum persónufrádrætti. Og það er vitanlega enginn vafi á því, að hjer á að reikna tekjuskattsviðaukann af skattskyldum tekjum, eins og skattinn sjálfan. Þess vegna finst mjer alveg sjálfsagt af hv. þd. að fallast á þessa breytingu. Hún virðist vera svo rjettlát og eðlileg og í fullu samræmi við það, sem þingið ætlaðist til í fyrra með lögunum um tekjuskattsviðaukann.
* Ræðuhandrit óyfirlesið.