21.03.1929
Efri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (2361)

89. mál, almennur ellistyrkur

Fjmrh. (Einar Árnason):

Í þessu frv. eru tillögur um að hækka tillögin til ellistyrktarsjóðanna um helming. Þetta er náttúrlega ofur einfalt ráð, en þess verður að gæta, að hjer er verið að hækka nefskatt, sem kemur misjafnlega þungt niður. Og það er álitamál, hvort það er heppilegur grundvöllur. Jeg er ekki að neita því, að því fje sje vel varið, sem rennur til ellistyrktarsjóðanna. En jeg hefði kosið, úr því farið er að ráðgera breytingar, að leitast hefði verið við að finna annan og sanngjarnari grundvöll undir fjáröflun til sjóðanna heldur en þann, sem nú gildir. Jeg hefði talið rjettara, að hv. flm. hefðu bent á einhverja æskilegri leið en þá, að hækka persónulega nefskatta um helming. Þeir eru ávalt ósanngjarnir. Það getur verið, að það muni ekki mikið um upphæðina út af fyrir sig, en þegar þetta kemur úr mörgum áttum, þá fer það að draga. Jeg vil því beina því til hv. n., er málið fær til meðferðar, hvort hún sjái sjer ekki

fært að breyta grundvellinum. Jeg skal benda á þá leið, að hvorki framlög ríkissjóðs eða einstaklinga verði hækkuð, heldur verði sjóðunum auknar tekjur með því að láta bæjar- og sveitarfjelög leggja fram vissa upphæð fyrir hvern gjaldþegn. Það kemur sanngjarnar niður og ætti ekki að verða illa liðið, því það ætti að draga úr fátækrakostnaðinum. Og það er ekkert óeðlilegt, þó að bæjar- og sveitarsjóðir leggi eitthvað af mörkum til styrktar þessum sjóðum. — Jeg vildi einungis benda nefnd þeirri, er væntanlega fær málið til meðferðar, á þetta til athugunar.