21.03.1929
Efri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í C-deild Alþingistíðinda. (2363)
89. mál, almennur ellistyrkur
Fors. og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg get gefið þær upplýsingar út af orðum hv. 1. landsk., að samþ. var á þinginu í fyrra að fela landsstjórninni að láta fara fram rannsókn að undirbúningi ellitrygginga. Jeg sneri mjer til sjerfræðings í þessum greinum, Brynjólfs Stefánssonar skrifstofustj., en bæði er það, að málið er yfirgripsmikið og hann hefir mikið að gera, og því býst jeg ekki við, að hægt verði að leggja álit hans fyrir nefnd á þessu þingi.