11.04.1929
Efri deild: 42. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í C-deild Alþingistíðinda. (2369)
89. mál, almennur ellistyrkur
Frsm. (Jón Þorláksson):
Lögin um almennan ellistyrk frá 9. júlí 1909 hafa tvennskonar markmið. Það fyrra er að safna í sjóði til styrktar þessu málefni í framtíðinni, en hitt að veita fje til styrktar gamalmennum með árlegum úthlutunum. Þessi lög eru nú orðin 20 ára gömul og hafa borið þann árangur, að í árslok 1927 var upphæð ellistyrktarsjóðanna komin lítið eitt á aðra milj. kr., og 93 þús. kr. var árlega úthlutað úr sjóðunum. Aukning sjóðanna síðasta ár var um 73 þús. kr. Frv. það, sem hjer liggur fyrir á þskj. 116, fer fram á að tvöfalda öll tillög til sjóðanna, bæði ríkissjóðsframlagið og tillag gjaldenda, en breytir að öðru leyti ekki ákvæðunum um árlega úthlutun eða aukningu sjóðanna. Það er því svo, að frv. þetta mundi að töluverðu leyti tvöfalda bæði árlega útborgun og aukningu sjóðanna, en þó ekki til fulls, því að frv. hefir ekki áhrif á þann hluta upphæðanna, sem falinn er í vöxtum, en af þeim kemur helmingur til útborgunar árlega, en hinn helmingurinn legst við sjóðinn, svo að ekki verður um algerða tvöföldun á útborgun og aukningu að ræða.
Nefndin hefir í einu hljóði fallist á það, að rjett væri að auka tekjur sjóðanna, en vill hinsvegar láta verja þeim tekjuauka á þann hátt, að hann fari allur til þess að auka árlega úthlutun, en alt verði látið sitja við gömlu ákvæðin um fjárframlög til aukningar sjóðunum. Nefndin leggur til, að þessu takmarki verði náð með dálítið breyttri tilhögun frá því, sem frv. hefir stungið upp á. Gjaldið til sjóðanna úr ríkissjóði er nú 1 kr. fyrir hvern gjaldskyldan mann, og persónuframlag manna á aldrinum 18–60 ára, með fáum undantekningum, 2 kr. fyrir hvern karlmann og 1 kr. fyrir hvern kvenmann. Till. n. á þskj. 270 fela það í sjer að efni, að inn komi þriðji aðiljinn, sem er bæjar- eða hreppssjóður, og leggi fram jafnmikla upphæð og tillagið úr ríkissjóði nemur, og komi öll sú upphæð til úthlutunar á árinu. Till. fara einnig fram á að hækka persónugjöldin um 50%, þannig, að árgjald karlmanna hækki úr 2 kr. upp í 3 kr. og árgjald kvenna úr 1 kr. upp í 1.50 kr. N. taldist svo til, að með þessu mundi sú upphæð, sem árlega kemur til úthlutunar, aukast um 85–87 þús. kr., og hygg jeg að það muni láta nærri, að þetta sje sama hækkun árlegri úthlutun og komið hefði fram af ákvæðum. frv. Aftur á móti yrði ekki teljandi hækkun á þeirri upphæð, sem gengur til aukningar sjóðanna. Fyrir hönd n. þykist jeg ekki þurfa að fara mörgum orðum um þessa afstöðu hennar. Henni þykir meiri þörf á því að koma sjóðunum í meira gagn nú þegar, heldur en að auka þá til muna, og telur að þeir nái betur tilgangi sínum, þegar þessi upphæð bætist við til árlegrar úthlutunar. Þegar þetta er borið saman við ummæli hv. flm., þá má sjá, að þeir leggja aðaláhersluna á það sama, þörfina á því að auka þá upphæð, sem árlega kemur til úthlutunar, svo að sjóðirnir komi að meira gagni en nú er. Í brtt. er bæjar- og hreppsjóðum bætt við sem þriðja aðilja, og er það ekki nema eðlilegt, því að ellistyrkurinn mundi ljetta undir með sveitarsjóðunum með því að styrkja gamalmenni og halda þeim frá sveit, sem annars mundu leita til sveitarsjóðanna, ef ellistyrkurinn væri ekki. Þess vegna var sveitarsjóðunum bætt við, án þess þó að leggja á þá þá kvöð, að auka höfuðstól sjóðanna. Einn nefndarmanna hefir skrifað undir nál. með fyrirvara. Hann vill máske velja aðra leið til þess að auka tekjur sjóðanna, en er að öðru leyti meiri hl. samþykkur um það, að verja væntanlegum tekjuauka til útborgunar árlega. Jeg sje svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta af hálfu nefndarinnar.
*Ræðuhandrit óyfirlesið.