11.04.1929
Efri deild: 42. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í C-deild Alþingistíðinda. (2375)
89. mál, almennur ellistyrkur
Ingibjörg H. Bjarnason:
Jeg hefi hjer aðeins litlu við að bæta. Get tekið undir það, sem hv. meðflm. minn að brtt. á þskj. 291 við brtt. n., sagði, að það er betra fyrir sjóðina, að tillag ríkissjóðs sje líka hækkað. Það er í anda frv. eins og það var flutt. En hitt er annað mál, hvort ekki sje rjett að láta sjer þetta lynda til bráðabirgða, þar sem það þó eykur upphæð þá, sem úthlutað er til styrkþega. Jeg vil því engu kappi etja um það, nje stofna frv. í voða þess vegna, með því að halda því fram, að hið eina sáluhjálplega sje að hækka ríkisstyrkinn, enda þótt það hefði verið æskilegra.
Hv. 4. landsk. gat þess, að hann hefði vakið máls á því, að þriðji aðili kæmi fram í þessu máli. Jeg man nú ekki eftir þessu, en það hefir getað farið fram hjá mjer. Mjer heyrðist hann vera þessu máli hlyntur. Allir hafa verið sammála um það aðalatriði, að styrkur þessi hafi jafnan verið mjög lítill og að hann hafi því lítið bætt úr hinni miklu þörf. En gangi þetta mál fram, þá breytist þetta nokkuð til batnaðar, og styrkurinn getur orðið myndarlegri og komist nær hámarki sínu, 200 kr. En nálægt því hefir hann aldrei komist í sögu þessa bæjar, hvað sem verið hefir úti um land. Þótt lög verði sett um almennar tryggingar og þessi lög verði þá afnumin eða gerbreytt, þá verður þó þarna til töluverður sjóður, sem gengið getur inn í það kerfi, sem þá verður myndað.
Jeg hjó eftir því, að hæstv. fjmrh., sem var mótfallinn hækkun persónugjalds og ríkissjóðs, væri nú hlyntur frv., þegar aðrar leiðir væru fundnar til eflingar sjóðunum. Virðist mjer því blása byrlega fyrir þessu frv. hjer í hv. deild. Vona jeg að hið sama verði í hv. Nd. Óska jeg svo frv. góðs gengis.