03.05.1929
Neðri deild: 60. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í C-deild Alþingistíðinda. (2389)

89. mál, almennur ellistyrkur

Hjeðinn Valdimarsson:

Jeg ætlaði ekki að taka til máls um þetta hjegómamál, en eftir ræðu hv. 1. þm. N.-M., finn jeg mig knúðan til að benda á eina reginvillu, sem hann fór með. Hann sagði sem sje, að sveitarsjóðirnir hefðu enga tekjustofna. Nú veit jeg ekki betur, en að sveitarsjóðir hafi heimild til að leggja á menn gjöld „eftir efnum og ástæðum“.

Jeg get nú ekki hugsað mjer víðtækari tekjustofn en þetta, að mega leggja takmarkalausan skatt á mann, eftir efnum hans og ástæðum. Skattar ríkissjóðs eru þó ákveðnir á alt annan og þrengri hátt. Þessi staðhæfing hv. þm. er því hreinasta firra.

Ef nokkurt gagn getur orðið að frv., þá er það helst það, að forða sveitarsjóðunmn frá útgjöldum til fátækrastyrks o. þvíl., en jeg hefi þó enga trú á, að 30–70 kr. bjargi neinum frá sveit. — Annars er þetta kák, alt frá upphafi til enda, og mjer finst alþýðunni sannarlega boðnir steinar fyrir brauð, með því að kalla þetta „almennan ellistyrk“. Þetta mál er, eins og hv. frsm. minni hl. rjettilega hefir lýst, best komið með því að vísa því til stjórnarinnar.