03.05.1929
Neðri deild: 60. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í C-deild Alþingistíðinda. (2392)

89. mál, almennur ellistyrkur

Hjeðinn Valdimarsson:

Mjer er næst að halda, að hv. 2. þm. G.-K. hafi dottað í stólnum meðan jeg talaði síðast. (ÓTh: Það hefði nú verið næsta eðlilegt). Jeg sýndi þá fram á, að þetta frv. er ekki annað en einskisvert kák, sem alls ekki getur náð þeim tilgangi, sem talað er um, að halda mönnum frá sveit. Það er hreint og beint hlægilegt að ætla sjer með því að hækka ellistyrk um 30–70 kr. á ári, að halda þeim mönnum frá að þiggja af sveit, sem á annað borð eru orðnir ósjálfbjarga. Jeg hygg, að hjer í Reykjavík a. m. k. sjeu þeir teljandi, sem geta lifað á svo litlu.

Að fara að samþ. annað eins viðrinisfrv. og þetta, er auðvitað ekki til annars en þess, að tefja fyrir því, að málið gangi fram í viðunandi mynd.

Jeg þekki svo vel Íhaldsmenn og sömuleiðis suma Framsóknarmenn, að jeg veit, að ef þetta kák verður sett í lög, verður vitnað í það næst þegar þessu máli verður hreyft, að nú sje nýbúið að bæta þetta svo, að við megi una fyrst um sinn, og sje því engra endurbóta þörf. Þeir, sem á annað borð vilja koma á almennum ellistyrk og bæta úr fyrir gamalmennum okkar verulega frá því, sem nú er, geta ekki ljeð þessum fleyg atkvæði sitt.