11.05.1929
Efri deild: 66. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í C-deild Alþingistíðinda. (2403)
89. mál, almennur ellistyrkur
Fjmrh. (Einar Árnason):
Jeg felst á brtt. hv. fjhn. og tel þær til bóta, með því að þær færa frv. aftur til þess horfs, sem það var í, er það fór frá þessari hv. deild. Annars er jeg yfirleitt ekki ánægður með þetta frv., og hefði ekki viljað láta gera aðra breytingu á núgildandi löggjöf í þessu efni en að taka sveitarsjóðina inn í, sem þriðja aðilja. Jeg er því mjög mótfallinn, að ríkissjóðsframlagið til ellistyrktarsjóðanna sje hækkað. Það er nú að verða algengt, að þingið lögbindi tekjur ríkissjóðs meira og minna í ýmsum 1. Frv., sem hjer var áður á ferðinni, er eitt af því tæi. En því meira sem þingið lögbindur tekjur ríkissjóðs á þennan hátt, því minna hefir það úr að spila til ýmissa framkvæmda, sem annars eru taldar nauðsynlegar og ákveðnar eru í fjárl., eða þá að grípa verður til þess að leggja óhæfilega háa skatta á þjóðina, til þess að geta fullnægt þessu. Það verður því að gæta varúðar í því, að bæta þannig hvað eftir annað lögbundnum gjöldum á ríkissjóð.